Frá Landsmótinu á Melgerðismelum 1998. Mynd/funamenn.is

Funi ætlar ekki að kæra

3 jan 2012 - 16:16

Stjórn Hestamannafélagsins Funa í Eyjafjarðarsveit hyggst ekki kæra til ÍSÍ þá ákvörðun stjórnar Landssambands hestamanna að setja landsmótin 2014 og 2016 niður á Hellu og Vindheimamelum í Skagafirði en Funi sótti um bæði mótin. Þetta kemur fram á vikudegi.is, þar sem Valur Ásmundsson formaður Funa segir að félagið muni óska eftir því að ÍSÍ hlutist til um að gætt sé jafnræðis við úthlutun landsmóta.

„Valur segir það er umhugsunarefni fyrir hestamenn á norðausturhorninu ef öllu því fjármagni sem ríkið setur í Landsmótsundirbúning er fyrst og fremst ráðstafað á tveimur svæðum sem eru síst betri en Melgerðismelar. Hann segir að Funi hafi mikinn áhuga á því að taka á móti þessum stóra viðburði sem landsmótið er. Þetta sé hins vegar hagsmunamál fyrir marga aðila á Norðurlandi. “Við höfum engan áhuga á því að standa í slag við önnur hestamannafélög og svona togstreita þarf ekki að myndast af LH vinnur faglega og með hagsmuni allra hestamanna fyrir brjósti, án tillits til búsetu,” segir Valur í samtali við Vikudag.is.

Fréttina má nálgast hér.

 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.

Fréttir