Artemisia öruggur sigurvegari-
Artemisia Bertus og Korgur frá Ingólfshvoli fóru með sigur af hólmi í gæðingafimi Meistaradeildar sem var um það bil að ljúka. Sýning þeirra var fáguð og vönduð, fumlaus og flæðandi. Korgur var mjúkur og afkastamikill á gangi, fimiæfingarnar fljótandi og reiðmennska Artemisiu til fyrirmyndar, ásetan falleg og ábendingar mjúklegar.
Önnur varð Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum, með kraftmikla og skemmtilega sýningu og var auðheyranlega uppáhald áhorfenda sem fögnuðu vel sýningu þeirra. Þriðji varð Jakob Svavar Sigurðsson og Árborg frá Miðey sem stukku þar með upp úr 5. sætinu, enda var samspilið og flæði sýningarinnar þeirrar allt annað en það var í forkeppni.
Eftir tvö mót leiðir Artemisia Bertus einstaklingskeppni Meistaradeildarinnar nokkuð örugglega, með 24 stig - hvílík byrjun hjá henni!
Gæðingafimi lið Meistaradeildar var Top Reiter/Ármót en þeir félagar voru einmitt kjörnir fjórgangslið Meistaradeildar sl. fimmtudag.
Úrslit Gæðingafimi:
- Artemisia Bertus Hrímnir Korgur frá Ingólfshvoli 7,72
- Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Díva frá Álfhólum 7,48
- Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Árborg frá Miðey 7,13
- Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Segull frá Flugumýri II 7,05
- Sigurður Sigurðarson Lýsi Loki frá Selfossi 7,00
Fréttir
-
21 maí 2012 - 22:55
-
21 maí 2012 - 20:33
-
21 maí 2012 - 13:54
-
21 maí 2012 - 12:06
-
20 maí 2012 - 21:39
-
19 maí 2012 - 22:26
-
19 maí 2012 - 21:49
-
19 maí 2012 - 19:08
-
19 maí 2012 - 18:55
-
19 maí 2012 - 18:32
-
19 maí 2012 - 17:51
-
19 maí 2012 - 17:45
-
19 maí 2012 - 07:23
-
19 maí 2012 - 07:17






Ummæli
Skrifa ný ummæli