Fallegar sýningar í forkeppni
Forkeppni gæðingafimi Meistaradeildar er lokið. Sýningarnar voru jafn ólíkar og þær voru margar, sem gerði keppnina afar skemmtilega áhorfs.
Hæstu einkunn hlaut sigurvegari síðasta fimmtudags, Artemisia Bertus sem keppir fyrir Hrímni. Hún sat stóðhestinn Korg frá Ingólfshvoli sem var þjáll, mjúkur og sýningin fumlaus og fallega riðin hjá Artemisu sem er heldur betur að stimpla sig inn á meðal færustu knapa landsins.
Liðsmaður Ganghesta/Málningar, Sara Ástþórsdóttir átti “brekkuna” með stórskemmtilegri sýningu á Dívunni sinni frá Álfhólum, undir dansandi stuðtónlist uppskar hún fögnuð áhorfenda þegar hún beitti sérkenni sínu; yfirferðartölt með engu taumsambandi. Hún er sem stendur í 2. sæti og á eflaust eftir að gera veglega atlögu að Artemisiu og Korg í úrslitum með tölttöfrum og sýningargleði.
Þriðji er svo Lýsismaðurinn Sigurður Sigurðarson sem sýndi Loka frá Selfossi fumlaust.
Með settlegri sýningu skaut Þorvaldur Árni Þorvaldsson sér svo í fjórða sætið á Segli frá Flugumýri II. Hann keppir fyrir Top Reitier/Ármót.
Fimmti er liðsfélagi Þorvaldar og titilverjandinn, Jakob Svavar Sigurðsson og Árborg frá Miðey og munu því stíga fyrst á völl eftir hlé.
Úrslit úr forkeppni
- Artemisia Bertus Hrímnir Korgur frá Ingólfshvoli 7,47
- Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Díva frá Álfhólum 7,37
- Sigurður Sigurðarson Lýsi Loki frá Selfossi 7,07
- Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Segull frá Flugumýri II 6,87
- Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Árborg frá Miðey 6,83
- Sylvía Sigurbjörnsdóttir Ganghestar / Málning Þórir frá Hólum 6,63
- Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Jarl frá Mið-Fossum 6,73
- Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Hrímnir frá Ósi 6,63
- Eyvindur Mandal Hreggviðsson Auðsholtshjáleiga Hersveinn frá Lækjarbotnum 6,37
- Lena Zielinski Auðsholtshjáleiga Njála frá Velli II 6,30
- Viðar Ingólfsson Hrímnir Segull frá Mið-Fossum 6,17
- Ólafur Ásgeirsson Spónn.is Hugleikur frá Galtanesi 6,10
- Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Hængur frá Hæl 6,07
- Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Sveigur frá Varmadal 5,90
- Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Málning Sóllilja frá Álfhólum 5,83
- Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Bergþór frá Feti 5,83
- Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Þóra-Dís frá Auðsholtshjáleigu 5,73
- Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Glaumur frá Vindási 5,57
- Eyjólfur Þorsteinsson Lýsi Stígur frá Halldórsstöðum 5,50
- Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is Geisli frá Svanavatni 5,03
- John Kristinn Sigurjónsson Hrímnir Þrumufleygur frá Álfhólum 5,00
Fréttir
-
21 maí 2012 - 22:55
-
21 maí 2012 - 20:33
-
21 maí 2012 - 13:54
-
21 maí 2012 - 12:06
-
20 maí 2012 - 21:39
-
19 maí 2012 - 22:26
-
19 maí 2012 - 21:49
-
19 maí 2012 - 19:08
-
19 maí 2012 - 18:55
-
19 maí 2012 - 18:32
-
19 maí 2012 - 17:51
-
19 maí 2012 - 17:45
-
19 maí 2012 - 07:23
-
19 maí 2012 - 07:17





Ummæli
Skrifa ný ummæli