<

Fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar

12 feb 2012 - 12:58
Keppt í fjórgangi á föstudag

Fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar verður fer fram 17. febrúar nk. í Þytsheimum Hvammstanga. Keppt verður í fjórgangi.

"Þá fer að styttast í fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar en það verður 17. febrúar nk og verður að vera búið að skrá á miðnætti þriðjudagsins 14. febrúar. Skráning er hjá Kollu á mail: kolbruni@simnet.is. Keppt verður í fjórgangi í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki og flokki 17. ára og yngri (fædd 1995 og seinna) Það sem koma þarf fram er nafn og kennitala knapa, lið, hestur, IS númer og upp á hvora hönd á að ríða. Það verða tveir inn á í einu og er prógrammið í forkeppni, hægt tölt - fegurðartölt - fet - brokk - stökk og er stjórnað af þul. En úrslit verða riðin eins og venjulega, hægt tölt - brokk - fet - stökk - fegurðartölt.

Skráningargjaldið er 1.500 fyrir fullorðna og 500 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.

Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri," segir í tilkynningu frá mótanefnd liðakeppninnar.

Meðfylgjandi er opnunarmyndband mótaraðarinns.

 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.

Fréttir