Hrós til bæjarstjórnar Garðabæjar

7 feb 2012 - 14:11
Yfirlýsing frá formanni Andvara vegna fasteignagjalda

Ingibjörg G. Geirsdóttir formaður hestamannafélagsins Andvara í Garðabæ sendir frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

„Yfirvöld í Reykjavík ákváðu um áramótin að hækka fasteignagjöld á hesthús í þéttbýli. Hestamenn eru mjög ósáttir við þessa hækkun. Margir þurfa að hætta í hestamennskunni, þar sem þeir hafa hreinlega ekki efni á því að stunda sportið lengur. Er þetta það sem yfirvöld vilja - að fækka hestafólki og fjölga fólki á Hlemmi? Því samkvæmt Forvarnardeginum (www.forvarnardagur.is) er eitt af heilráðum til að forða börnum og unglingum frá fíkniefnum: „Hvetjum börn og unglinga til þátttöku í skipulögðu íþrótta-og æskulýðsstarfi.“

En það eru ekki allir sem fara þessa leið þar sem fasteignagjöld í Andvara, Garðabæ eru ekki þau sömu og í Reykjavík og Kópavogi.  Árið 2009 ætlaði bæjarstjórn Garðabæjar að hækka fasteignagjöld á hesthúsum, sem þeir gerðu, en þá stóð stjórn Andvara upp og mótmælti þeim hækkunum. Það var leiðrétt með því að gefa afslátt af fasteignagjöldum og eru þau eins og áður, hafa ekki hækkað neitt.

Ég vil því hrósa bæjarstjórn Garðabæjar fyrir að standa við bakið á hestamönnum, sem jafnframt gerir börnum og unglingum auðveldara með að stunda sportið. Fasteignagjöld í Garðabæ á hesthúsum er 0,5%, Kópavogi 0,625%, Reykjavík 1,65%.“

 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.

Fréttir