Ísólfur og Kristófer hafa sigrað tvö fjórgangsmót sl. viku.

Ísólfur og Kristófer sigruðu fjórgang

23 feb 2012 - 09:57
Spennandi fyrsta móti KS-deildar

Ísólfur Líndal Þórisson fór með sigur af hólmi í æsispennandi fjórgangskeppni KS-mótaraðarinnar sem fram fór í gærkvöldi í Svaðastaðahöll.

 
Mikið mæddi á Ísólfi og gæðingnum hans Kristófer frá Hjaltastaðahvammi en þeir fóru fjallabaksleiðina að sigrinum, tryggðu sér sæti í A-úrslitum með sigri í B-úrslitum. Aðeins er tæp vika síðan Ísólfur og Kristófer unnu fjórgangsmót Húnvetnsku liðakeppninnar og eru þeir að stimpla sig rækilega inn meðal sterkustu íþróttakeppnispar landsins. Kristófer er undan Andvarasyninum Stíganda frá Leysingjastöðum II og Kosningu frá Ytri-Reykjum sem er undan Bakka-Baldurssyni. 
 
Annar varð Ólafur Magnússon á Gáska frá Sveinastöðum sem var efstu eftir forkeppni og bronsið fékk Sölvi Sigurðarson sem sat Óða-Blesa frá Lundi. Öll úrslit eru væntanleg á KS-deildarsíðu Eiðfaxa.
 
A-úrslit
  1. Ísólfur Líndal Þórisson – Kristófer frá Hjaltastaðahvammi  7,47
  2. Ólafur Magnússon -  Gáski frá Sveinsstöðum  7,40
  3. Sölvi Sigurðsson – Óði- Blesi frá Lundi  7,37
  4. Bjarni Jónasson – Roði frá Garði  7,23
  5. Baldvin Ari Guðlaugsson – Senjor frá Syðri Ey  7,13
  6. Fanney Dögg Indriðadóttir – Grettir frá Grafarkoti  7,0
 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.

Fréttir