Ragnar Stefánsson tekur Maur frá Fornhaga til kostanna á landsmóti. Mynd/GHP

Opið ísmót á Hrísatjörn um helgina

22 feb 2012 - 12:53
Skráning stendur yfir

Opið ísmót verður haldið á Hrísatjörn laugardaginn 25. febrúar nk. Keppt verður í Líflands-Tölti og Húsasmiðju-100m skeiði.

„Skráningar skulu berast á netfangið hringurdalvik@hringurdalvik.net fyrir fimtudagskvöldið 23. febrúar kl. 20. Við skráningu skal koma fram nafn knapa, nafn hests, grein og litur hests.

Skráningargjald er 2000 kr. fyrir fyrstu grein, en 1500 kr. á næstu. Skráningargjald þarf að leggja inná kt. 540890-1029, reikn: 1177-26-175 tilvísun ísmót kvittun sendist á hringurdalvik@hringurdalvik.net.

Skráning telst ógild þar til greiðsla hefur borist. Mótið hefst kl. 12 og skulu knapar vera mættir kl. 11.30. Nánari upplýsingar hjá Svavari 6624216 eða á hringurdalvik@hringurdalvik.net,“ segir í tilkynningu frá mótanefnd Hrings.

Í fyrra sigraði Atli Vigfússon á Krumma frá Egilsá ekki óþekkari keppinauta en Stefán Friðgeirsson og Dag frá Strandarhöfði og Önnu Kristínu Friðriksdóttur og Glað frá Grund. Það var svo Ragnar Stefánsson sem fór með sigur af hólmi í skeiðinu á Maur frá Fornhaga þegar hann fór metranna 100 á 8,75 sekúndum.

 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.

Fréttir