Tölthátíð á fimmtudag
Á fimmtudaginn klukkan 19:30 verður keppt í tölti í Meistaradeild í hestaíþróttum. Forsala aðgöngumiða er hafin í verslunum Top Reiter og Líflandi og verða miðar komnir seinna í dag í Baldvin og Þorvald á Selfossi.
Það var Viðar Ingólfsson, Hrímnir, á Tuma frá Stóra-Hofi sem sigraði töltið í fyrra og var það í annað sinn sem þeir félagar sigruðu töltið í deildinni. En Tumi fór utan í sumar þannig að það liggur í augum uppi að nýtt par mun standa uppi sem sigurvegarar kvöldsins. Ráslistinn verður birtur í kvöld eða fyrramálið og má gera ráð fyrir mörgum af sterkustu tölturum landsins á honum. Það verður gaman að sjá hvort Artemisia Bertus, Hrímnir, mun standa uppi sem sigurvegari þriðja mótið í röð eða hvort nýr knapi standi efstur á palli í lok kvölds. En baráttan um gullið mun verða hörð þar sem marga knapa er farið að hungra í sigur.
Aðgangseyrir á mótið er 1.500 krónur og eins og áður sagði er forsala hafin en gera má ráð fyrir húsfylli og því er um að gera að tryggja sér miða í tíma.
Sýnt verður beint frá mótinu hér á vefsíðu Eiðfaxa.
Fréttir
-
21 maí 2012 - 22:55
-
21 maí 2012 - 20:33
-
21 maí 2012 - 13:54
-
21 maí 2012 - 12:06
-
20 maí 2012 - 21:39
-
19 maí 2012 - 22:26
-
19 maí 2012 - 21:49
-
19 maí 2012 - 19:08
-
19 maí 2012 - 18:55
-
19 maí 2012 - 18:32
-
19 maí 2012 - 17:51
-
19 maí 2012 - 17:45
-
19 maí 2012 - 07:23
-
19 maí 2012 - 07:17





Ummæli
Skrifa ný ummæli