Ungir á uppleið: Ragnhildur Haraldsdóttir
Rétt er að minna á sýnikennslu fjögurra ungra og efnilegra reiðkennara sem Félag tamningamanna stendur fyrir í reiðhöllinni í Herði á morgun.
Einn þeirra er Ragnhildur Haraldsdóttir:
“Hún hefur stundað hestamennsku frá blautu barnsbeini. Fór að stunda tamningar af alvöru á unglingsaldri, vann við tamningar á sumrin og meðfram skóla þess á milli. Árið 2006 útskrifaðist hún með stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund og tvemur árum seinna hóf hún nám við Háskólann að Hólum í Hjaltadal. Þar hlaut hún meðal annars Morgunblaðsskeifuna og reiðmennsku verðlaun FT árið 2009. Ragnhildur útskrifaðist síðan vorið 2011 með reiðkennararéttindi C frá Hólaskóla.
Ragnhildur byrjaði að keppa í barnaflokki og hefur tekið þátt í keppni síðan með góðum árangri. Þar má sem dæmi nefna Íslandsmeistaratitil í 4 gangi unglinga, úrslit í ungmennaflokki á Landsmóti, úrslit á íslandsmótum í ungmennaflokk, ásamt góðu gengi á ýmsu íþróttamótum í gegnum tíðina. Ragnhildur starfar núna við tamningar og þjálfun á Hvoli í Ölfusi og sinnir reiðkennslu samhliða því að þjálfa. “
Sýnikennsla Ragnhildar, James Faulkner, Rósu Birnu Þorvaldsdóttur og Lindu Rúnar Pétursdóttur hefst kl. 19.30 á sunnudag 12. febrúar í reiðhöll Harðar við Varmárbakka.
Aðgangseyrir er 1000 kr. en frítt er fyrir skuldlausa félaga FT.
Þessu tengt
Fréttir
-
21 maí 2012 - 22:55
-
21 maí 2012 - 20:33
-
21 maí 2012 - 13:54
-
21 maí 2012 - 12:06
-
20 maí 2012 - 21:39
-
19 maí 2012 - 22:26
-
19 maí 2012 - 21:49
-
19 maí 2012 - 19:08
-
19 maí 2012 - 18:55
-
19 maí 2012 - 18:32
-
19 maí 2012 - 17:51
-
19 maí 2012 - 17:45
-
19 maí 2012 - 07:23
-
19 maí 2012 - 07:17





Ummæli
Skrifa ný ummæli