Upprifjunarnámskeið HÍDÍ

9 feb 2012 - 13:16
Síðasti skráningardagur í dag

Síðasti skráningardagur á Upprifjunarnámskeið HÍDÍ sem fer fram í reiðhöllinni Víðidal 12. Febrúar kl. 10-17 er í dag fimmtudaginn 9. febrúar að er fram kemur í tilkynningu frá stjórn og fræðslunefnd HÍDÍ:

Vinsamlegast sendið skráningu á netfangið berglind@init.is

Námskeiðagjald kr. 15.000 / greiðist á staðnum í peningum, mæting á námskeið telst gild þegar greiðsla hefur borist.

Innifalið í gjaldi:  þátttökugjald námskeiðs, félagsgjald HÍDÍ, hádegismatur og kaffi.

Minnum alþjóðadómara á að láta vita ef þeir hafa skráð sig á Alþjóða dómararáðstefnuna. Ef alþjóða dómari vill mæta á upprifjunina (er jafnframt skráður á ráðstefnuna í apríl) á sunnudaginn þá höfum við ákveðið gjaldið fyrir þá kr. 5.000  (félagsgjald HÍDÍ og matur)

Drög að dagskrá sunnudagsins:
   Kl. 10:00      Pjetur N. Pjetursson formaður HÍDÍ
   Kl. 10:15      Hulda G. Geirsdóttir
   Kl. 10:45      Einar Öder Magnússon - Fagmennska í fyrirrúmi
   Kl. 12:00      Matarhlé
   Kl. 13:00      Sportfengur - stutt kynning
   Kl. 14:00- 17:00     Út að dæma og í framhaldi af því verður farið yfir dómana.

Viljum minna dómara á að koma klædd eftir veðri (dæmum úti) og með allar handbækur (Lög og reglur LH, Leiðarinn 2011) og penna/blýant og auðvitað góða skapið.

 
view counter
view counter

Ummæli

Skrifa ný ummæli

Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <p> <br> <ul> <ol> <li>
  • Twitter-style @usersnames are linked to their Twitter account pages.
  • Twitter-style #hashtags are linked to search.twitter.com.

More information about formatting options

Ruslpóstvörn
Þessi spurning er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.

Fréttir