Alda frá Auðsholtshjáleigu
mán, 20. jún., 2011 - 13:35 — gudrunhulda
Alda frá Auðsholtshjáleigu var sýnd á Héraðssýningunni að Sörlastöðum í maí 2011. Alda kemur úr ræktun Gunnars og Kristbjargar á Grænhóli og er undan Gára frá Auðsholtshjáleigu og Fold frá Auðsholtshjáleigu sem sýnd var á Landsmóti 2004 og hlaut þá 8,37 í aðaleinkunn, þar af 8,52 fyrir hæfileika. Á Héraðssýningunni á Sörlastöðum hlaut Alda 7,96 fyrir sköpulag og 8,15 fyrir hæfileika, þar af einkunnina 8,5 fyrir bak og lend, hófa, fegurð í reið, vilja og geðslag, stökk, brokk og tölt. Sýnandi Öldu var Bylgja Gauksdóttir. | |
![]() | |
Mót
Kynbótahross
Sýningar
Annað







































































































