Gæðingamót Fáks: B-flokkur

Meðfylgjandi er myndband frá úrslitum í B-flokki gæðinga á Gæðingamóti Fáks um helgina.

Örugg sýning Sveigs frá Varmadal og Huldu Gústafsdóttur skiluðu þeim bikarnum en hinn hreyfingamikli Húni frá Reykjavík og Sigurður Óli Kristinsson urðu í öðru sæti og Ásgrímur frá Meðalfelli og Anna S. Valdemarsdóttir skutust upp í þriðja sæti eftir að hafa komið áttundu inn í úrslit. 
Þorvaldur Árni Þorvaldson gekk hins vegar af velli með Smyril frá Hrísum eftir fyrri umferð brokksýningarinnar.
 
Úrslit urðu annars þessi:
1  Sveigur frá Varmadal/Hulda Gústafsdóttir  8,74 
2  Húni frá Reykjavík/Sigurður Óli Kristinsson  8,70 
3  Ásgrímur frá Meðalfelli/Anna S. Valdemarsdóttir  8,63 
4  Þórir frá Hólum/ Sylvía Sigurbjörnsdóttir  8,56 
5  Fura frá Enni/ Árni Björn Pálsson  8,52 
6  Magni frá Reykjavík/ Róbert Petersen  8,51 
7  Grunur frá Oddhóli/ Sigurbjörn Bárðason   8,40 
8  Smyrill frá Hrísum/ Þorvaldur Árni Þorvaldsson   1,71
Mót