Gæðingamót Fáks: A-flokkur

Gæðingamóti Fáks lauk á úrslitum í A flokki gæðinga á sunnudagskvöld.

Keppnisreynsla Sigurbjarnar Bárðarsonar og Stakks frá Halldórsstöðum skilaði þeim sigri en þeir hlutu í lokaeinkunn 8,93. Sigurður Vignir Matthíasson kom þremur hestum inn í úrslit, og kaus að sitja Mátt frá Leirubakka sjálfur en Vignir Siggeirsson sat Óm frá Hemlu II, sem hann ræktaði. Þá sat tengdafaðir Sigurðar, Ragnar Hinriksson sinn eigin hest, Hring frá Fossi í úrslitunum. Þá kepptu tveir knapar úr ungmennaflokki í úrslitunum, systkinin Teitur og Agnes Hekla Árnabörn.
 
1   Stakkur frá Halldórsstöðum / Sigurbjörn Bárðarson            8,931
2   Ómur frá Hemlu II / Vignir Siggeirsson            8,716
3   Sturla frá Hafsteinsstöðum / Hinrik Bragason            8,693
4   Máttur frá Leirubakka / Sigurður Vignir Matthíasson            8,691
5   Týr frá Litla-Dal / Sigurbjörn Viktorsson            8,607
6   Þulur frá Hólum / Teitur Árnason            8,573
7   Hringur frá Fossi / Sigurður Vignir Matthíasson            8,462
8   Gammur frá Skíðbakka III / Agnes Hekla Árnadóttir            8,162
Mót