Ístöltið "Þeir allra sterkustu" 2011 - A-úrslit
Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi sigruðu ístöltið “Þeir allra sterkustu” sem fram fór í skautahöllinni í Laugardal í kvöld, þriðja árið í röð. Einkunnirnar sem Halldór og Nátthrafn hlutu í A-úrslitum báru merki þess að þeir félagar hafi nær fullkomnað töltsýningu sína, þeir fengu aldrei undir 9 í einkunn og fyrir hægt tölt gaf eitt dómarapar þeim félögum fullt hús stiga. Lokaeinkunn þeirra var 9,22, langt á undan öðrum keppendum, sem voru þó stórglæsilegir. Sigurður Sigurðarson og Kjarnorka frá Kálfholti hlutu 8,78 og annað sæti og glæsiparið Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum hlutu 8,56 í einkunn og þriðja sætið. Úrslit urðu eftirfarandi: 1. Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi – 9,22
| |
![]() | |







































































































