Kappi frá Kommu

Stóðhesturinn Kappi frá Kommu er fæddur árið 2004. Hann er undan Þrist frá Feti og Kjarnorku frá Kommu. Hér sýnir Mette Moe Mannseth hann á héraðssýningu á Sörlastöðum í Hafnafirði árið 2010.

Hann hlaut glæsilegan dóm: 8,51 í aðaleinkunn, 8,51 fyrir hæfileika og 8,51 fyrir sköpulag. Þar af einkunnina 9,5 fyrir tölt, stökk, samræmi og fegurð í reið og einkunnina 9 fyrir brokk, vilja og geðslag, hægt stökk, háls/herðar/bóga og bak og lend. 

Mót