Kolka frá Hákoti
Kolka frá Hákoti fékk hæstu aðaleinkunn, 8,46, í flokki 5 vetra hryssa á Héraðssýningunni í Víðidal 2011. Hún fékk 8,39 fyrir sköpulag og 8,50 fyrir hæfileika. Þar af fékk hún einkunnina 9 fyrir brokk, geðslag og samræmi og 9,5 fyrir bak og lend. Sýnandi Kolku var Hrefna María Ómarsdóttir, sem er jafnframt annar eigandi hryssunnar ásamt móður sinni, Rósu Valdimarsdóttur. Kolka er undan Íkoni frá Hákoti og Þorradótturinni Frá frá Hákoti. Frá var m.a. sýnd á Landsmóti 2000 og hlaut 8,19 í dómi. Annað afkvæmi Fráar, Sæfari frá Hákoti hlaut einnig glæsilega einkunn á kynbótasýningu í Þýskalandi á dögunum, 8,6 í aðaleinkunn þar af 8,75 fyrir hæfileika. Íkon er undan Töfra frá Kjartansstöðum og Bellu frá Kirkjubæ sem var efst 4 vetra hryssa á Landsmóti 1998. | |
![]() | |







































































































