Lektor frá Ytra-Dalsgerði hlaut næst hæstu einkunn í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri á Héraðssýningu í Víðidal í maí 2011. Hann er undan Gára frá Auðsholtshjáleigu og Gígju frá Ytra-Dalsgerði sem eru undan Kjarval frá Suðárkróki. Hlaut Lektor 8,42 í aðaleinkunn, 8,59 fyrir sköpulag og 8,31 fyrir hæfileika. Sýnandi er Sigurður V. Matthíasson.