Ljósmynd frá Stekkholti

Ljósmynd frá Stekkholti var sýnd á Héraðssýningunni að Sörlastöðum í maí 2011. Ljósmynd er undan Gára frá Auðsholtshjáleigu og Ímynd frá Reykjavík sem er undan Hrynjanda frá Hrepphólum og Venus frá Skarði. Ímynd var sýnd á Landmótinu á Vindheimamelum árið 2002 og hlaut þá 8,28 í aðaleinkunn, 8,02 fyrir sköpulag og 8,45 fyrir hæfileika. Ljósmynd hefur verið sýnd á tveimur Héraðssýningum og hlaut hún hærri dóm á Vorsýningunni á Selfossi í maí sl., 8,05 í aðaleinkunn. Fékk hún þá 8,29 fyrir sköpulag og 7,89 fyrir hæfileika, þar af einkunnina 9 fyrir fótagerð og einkunnina 8,5 fyrir háls,herðar og bóga, bak og lend, hófa, prúðleika, fet, hægt tölt og tölt. Sýnandi Ljósmyndar var Artemisia Bertus.

Mót