Máttur frá Leirubakka
fim, 19. maí., 2011 - 16:34 — gudrunhulda
Máttur frá Leirubakka fékk hæstu aðaleinkunn allra hrossa á héraðssýningunni í Víðidal í maí 2011, þegar hann fékk 8,48 í aðaleinkunn. Hann var jafnframt hæstur í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri. Fyrir sköpulag hlaut hann7,99 og fyrir hæfileika 8,80. Þar af fékk hann einkunnina 9 fyrir tölt, skeið, vilja og geðslag og fegurð í reið. Máttur er undan Keili frá Miðsitju og Hervarsdótturinni Hrafnkötlu L52 frá Leirubakka. Sýnandi Mátts var Sigurður V. Matthíasson. | |
![]() | |
Mót
Kynbótahross
Sýningar
Annað







































































































