Vænting frá Kaldbak
mán, 20. jún., 2011 - 13:16 — gudrunhulda
Vænting frá Kaldbak var sýnd í flokki 5 vetra hryssa á Héraðssýningunni að Sörlastöðum í maí 2011. Vænting hlaut í aðaleinkunn 8,06. Fyrir sköpulag fékk hún 8,06 og 8,00 fyrir hæfileika, þar af einkunnina 9 fyrir tölt, stökk og fegurð í reið. Vænting er undan Takti frá Tjarnarlandi og Bendingu frá Kaldbak sem er sammæðra Mídasi frá Kaldbak. Sýnandi Væntingar var Eva Dyröy. | |
![]() | |
Mót
Kynbótahross
Sýningar
Annað







































































































