Lexus frá Vatnsleysu á Langstöðum í Flóa

  • 9. júní 2026
  • Fréttir

Lexus frá Vatnsleysu og Ævar Örn Guðjónsson. Ljósmynd: Aðsend

Lexus mun sinna hryssum í grasgefnu og góðu hólfi á Langstöðum í Flóa upp úr 20.júní.

Lexus er undan heiðursverðlaunahestinum og Sleipnisbikarhafanum Hróðri frá Refsstöðum. Móðir hans er Lýdía frá Vatnsleysu hátt dæmd og eftirminnileg hryssa sem m.a. varð bæði Landsmóts- og Íslandsmótsmeistari í tölti.

Fimm vetra gamall hlaut Lexus í kynbótadómi einkunnina 8,17 fyrir sköpulag og 8,13 fyrir hæfileika. Klárhestur með 9,0 fyrir tölt, brokk, fegurð í reið og vilja og geðslag. Þá hefur hann sannað sig sem afkvæmahestur og hlaut hann 1.verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti árið 2024 þar segir m.a.: Lexus gefur léttviljug, reist og hágeng hross sem fanga augað

Folatollur undir Lexus kostar 185.000 m. vsk innifalið í því er girðingagjald og ein sónarskoðun.

Miðað er við að hann verði til afnota upp úr miðjum júni en frekari upplýsingar veitir Rúnar Hjálmarsson í síma 848-1947 eða á netfangið runarhjalmarsson@gmail.com

Er þinn stóðhestur í stóðhestabók Eiðfaxa og þú vilt koma upplýsingum um hann á framfæri við lesendur Eiðfaxa. Sendu okkur texta á eidfaxi@eidfaxi.is auk ljósmyndar sem má nota með tilkynningunni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link