1. deildin í hestaíþróttum 1. deildin í beinni á EiðfaxaTV næsta vetur

  • 23. júní 2025
  • Fréttir

Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri Eiðfaxa, og Sigurður H. Örnólfsson, formaður 1. deildarinnar í hestaíþróttum.

1. deildin hefst 13. febrúar á keppni í fjórgangi en alls verða mótin fimm talsins.

Undirritaður hefur verið þriggja ára samningur milli EiðfaxaTV og 1. deildarinnar í hestaíþróttum um að EiðfaxiTV sýni beint frá deildinni í vetur.

Stjórn 1 deildarinnar í hestaíþróttum eru ekkert að tvínóna við hlutina en fyrir utan að hafa gert þriggja ára samning um beinar útsendingar við EiðfaxaTV þá hefur stjórnin ákveðið staðsetningu og dagsetningar fyrir deildina næsta vetur.

Deildin mun næstu árin verða til húsa í nýrri og glæsilegri Sörlahöll. Eiðfaxi kynnir með miklu stolti að 1. deildinni í hestaíþróttum verður gerð góð skil á streymisveitum okkar og vef á komandi tímabili.

Dagsetningar fyrir keppnisgreinar hafa þegar verið ákveðnar fyrir veturinn 2026 og eru þær eftirfarandi.

  • Fjórgangur V1, 13. feb 2026
  • Gæðingalist, 27. feb 2026
  • Slaktaumatölt T2, 12. mars 2026
  • Fimmgangur F1, 26. mars 2026
  • Tölt T1, 9. apríl 2026

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar