Hestamannafélagið Sleipnir Ásmundur og Hlökk Íslandsmeistarar í fjórgangi

  • 29. júní 2025
  • Fréttir
Firnasterkum A úrslitum í fjórgangi í meistaraflokki lokið.

Þeir Ásmundur Ernir Snorrason og Jakob Svavar Sigurðsson tóku afgerandi forustu eftir hæga töltið. Ásmundur á Hlökk frá Strandarhöfði hlaut 9,17 fyrir það atriði og Jakob á Skarpi frá Kýrholti 9,00.

Hin pörin náðu þó örlítið að saxa á þá á hinum atriðinum og eftir fetið voru titilverjendurnir Guðmunda Ellen Sigurðardóttir og Flaumur frá Fákshólum komin efst. Það stóð þó stutt því Ásmundur og Hlökk tóku forustuna eftir stökkið og sigldu sigrinum heim eftir stórglæsilega töltsýningu og lokaeinkunn 8,20.

Jakob og Skapur enduðu í öðru sþti með 8,07 og í því þriðja varð Árni Björn Pálsson á Krika frá Krika með 8,03. Það verður gaman að sjá þau Ásmund og Hlökk og Jakob og Skarp aftur í tölt úrslitunum í lok dags.

Félag tamningamanna mætti í verðlaunaafhendinguna og veitti henni Barböru Wenzl FT fjöðurina fyrir sýningu sína í forkeppni á Lofti frá Kálfsstöðum.

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Ásmundur Ernir Snorrason / Hlökk frá Strandarhöfði 8,20
Hægt tölt 9,00 9,50 9,50 9,00 9,00 = 9,17
Brokk 8,00 8,50 7,50 9,00 8,50 = 8,33
Fet 6,00 6,50 6,00 6,50 6,00 = 6,17
Stökk 8,00 7,50 8,00 8,50 8,00 = 8,00
Greitt tölt 9,00 9,00 9,50 9,50 9,50 = 9,33

2 Jakob Svavar Sigurðsson / Skarpur frá Kýrholti 8,07
Hægt tölt 8,50 9,00 9,00 9,00 9,00 = 9,00
Brokk 8,50 8,50 8,00 8,50 8,00 = 8,33
Fet 5,50 6,50 5,50 6,50 6,50 = 6,17
Stökk 8,50 7,50 7,50 7,50 8,00 = 7,67
Greitt tölt 9,00 9,00 9,50 9,00 9,50 = 9,17

3 Árni Björn Pálsson / Kriki frá Krika 8,03
Hægt tölt 9,00 9,00 9,00 8,00 8,50 = 8,83
Brokk 7,00 8,00 7,00 8,50 7,00 = 7,33
Fet 7,50 7,50 7,00 7,00 7,00 = 7,17
Stökk 8,00 7,50 8,00 8,50 8,50 = 8,17
Greitt tölt 7,50 8,50 9,00 9,00 8,50 = 8,67

4 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir / Flaumur frá Fákshólum 7,93
Hægt tölt 8,00 8,00 8,00 8,50 8,00 = 8,00
Brokk 8,50 8,00 8,00 8,50 7,50 = 8,17
Fet 7,50 8,00 7,50 8,00 7,50 = 7,67
Stökk 8,50 7,50 7,50 8,00 7,50 = 7,67
Greitt tölt 7,00 8,00 8,50 8,50 8,00 = 8,17

5 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir / Hulinn frá Breiðstöðum 7,87
Hægt tölt 7,50 8,50 8,00 8,50 8,00 = 8,17
Brokk 7,50 8,00 7,50 8,00 8,00 = 7,83
Fet 7,50 7,50 7,00 8,00 7,00 = 7,33
Stökk 8,00 7,50 8,50 7,50 8,00 = 7,83
Greitt tölt 7,50 8,00 8,50 8,50 8,00 = 8,17

6 Barbara Wenzl / Loftur frá Kálfsstöðum 7,53
Hægt tölt 7,50 8,00 8,00 8,00 7,50 = 7,83
Brokk 8,00 8,00 7,00 7,50 8,00 = 7,83
Fet 8,50 8,00 7,00 7,50 7,50= 7,67
Stökk 7,50 7,00 6,00 7,50 8,00 = 7,33
Greitt tölt 7,00 7,00 7,00 8,50 7,00 = 7,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar