Útflutningur hrossa árið 2024
Frá Íslandi fóru alls 1.318 hross á nýliðnu ári. Upprunaættbók íslenska hestsins, WorldFengur, geymir ýmsar nánari upplýsingar um hvað einkennir þennan hóp. Útflutt hross eldri en 8 vetra eru 20%, á aldursbilinu 4 – 8 vetra eru 58% og yngri en 4 vetra eru 22%. (sjá töflu hér fyrir neðan).
Hátt hlutfall óvanaðra trippa
Hlutfall óvanaðra hesta af heild er alls 31% (223/722) – reiknast 30% ef frá eru skilin hestfolöld útflutt á fæðingarári. Athyglivert er hátt hlutfall óvanaðra trippa, 1 til 3v., sem stígur hæst í veturgömlum folum þar sem 90% virðast fara utan ógeltir samkvæmt WorldFeng. Hér minnisvert að dýralæknum er ætlað að skrá geldingar og lyfjanotkun við verkið. Hlutfall sýndra hesta í hópi útfluttra reiknast 15% (85/568), þ.e. það hlutfall sem komið hefur til kynbótadóms á Íslandi.
Flest útflutt hross af Suðurlandi
Allir landshlutar eiga fulltrúa í flokki útfluttra hrossa en uppruna hópsins eftir landsfjórðungum má slíta úr neðangreindri töflu, gróflega flokkað eftir svæðisnúmerum fæðingarnúmera:
Tæp 50% hrossa eru útflutt á kennitölu íslensks eiganda
Vel þekkt er að erlendir aðilar rækta hross á Íslandi og flytja út ýmist folöld og trippi eða tamin hross. Ef skráðir ræktendur eru dilkadregnir eftir því hvort þeir hafa íslenska kennitölu eða ekki er niðurstaðan þessi.
- Íslenskur ræktandi / Íslenskur eigandi skráður við útflutning: 636 hross (48,3%).
- Íslenskur ræktandi / Erlendur eigandi skráður við útflutning: 492 hross (37,3%).
- Erlendur ræktandi / Erlendur eigandi skráður við útflutning: 185 hross (14,0%).
- Erlendur ræktandi / Íslenskur eigandi skráður við útflutning: 5 hross (0,4%).
Samkvæmt þessu er u.þ.b. eitt af hverjum sjö útfluttum hrossum 2024 ræktað af erlendum aðilum sem að líkindum reka starfsemi á Íslandi eða kaupa þjónustu við framfærslu sinna ræktunarhrossa. Athyglivert einnig að rétt tæp 50% hrossa eru útflutt á kennitölu íslensks eiganda.
Rúm 33% útfluttra hrossa með skráð DNA-sýni
Af 1.318 útfluttum eru 436 með skráð DNA-sýni til ættfærslustaðfestingar; þ.e. 33,1%. Niðurstaða greiningar liggur fyrir í 425 sýnum en niðurstaða ekki komin fram í x11 sýnum. Um DNA-greind hross er frekar að segja:
- Fullstaðfest í F- og M-legg, sýni fyrirliggjandi úr F og M, alls 378 hross eða 88,9% (378/425).
- Staðfest í Föðurlegg, ekkert sýni til úr M, alls 42 eða 9,9%.
- Staðfest í Móðurlegg, ekkert sýni til úr F, alls 3 eða 0,7%.
- Hvorugt foreldra með sýni alls 2 hross eða 0,5%.
Ekkert hross flutt út í ágúst
Stærstu útflutningsmánuðir eru október og nóvember en fast á hæla fylgja janúar og desember ´24. Ekkert hross fór utan í ágústmánuði.
Meðalverð útfluttra hrossa rétt liðlega milljón
Hagstofa Íslands safnar upplýsingum um skráð FOB-verð (Free on Board) útflutnings samkvæmt tollskrárnúmerakerfi. Þann 14. janúar síðastliðinn mátti nálgast gögn fyrir útflutt hross 2024 allt til enda nóvembermánaðar.
Í nóvemberlok voru útflutt hross alls orðin 1.155. Þó það segi takmarkaða sögu er meðalverð útfluttra hrossa þá rétt liðlega 1 milljón króna, FOB-verð, eða kr 1.056.113,- á haus.
Í meðfylgjandi töflu má sjá heildarfjölda útfluttra árabilið 2014 til 2024 ásamt með hlutfallslegri breytingu milli ára. Árið 2021 ber höfuð og herðar yfir það sem hér er skoðað í fjölda en upphafsárið 2014 er lágmarkið í úrtaki.
Í þeim tölum sem hér eru samanteknar úr WorldFeng, og víðar, er engin tilraun gerð til að kafa dýpra eða fara nánar ofan í samhengi einstakra þátta. Hins vegar ættu hér að vera nokkrar áhugaverðar kveikjur og grundvöllur til umræðu meðal hestamanna og hrossaræktenda.
Í komandi nýjum WorldFeng, á næstu árum, gefst e.t.v. tækifæri til að skapa eitthvað sem heitið gæti Mælaborð íslenskrar hrossaræktar og birti sambærilegar og mun fleiri tölulegar stærðir um þróun og horfur – í rauntíma.