„Ætlaði mér að vinna“
Jón Ársæll Bergmann á Díönu frá Bakkakoti sigraði keppinauta sína í slaktaumatölti í Meistaradeild Líflands í gærkvöldi með þó nokkrum yfirburðum, með einkunnina 8,71 í úrslitum. Jón mætti í viðtal til Huldu Geirsdóttir á EiðfaxaTV að lokinni keppni.
Í viðtalinu kemur hann inn á það að fyrir kvöldið taldi hann sig geta unnið fyrirfram og hefði átt von á því, hefði sætt sig við það að vera á palli en innst inni ætlaði hann að vinna. Hann og Díana hafa fylgst að frá byrjun því hann hefur verið með hana frá því hún var frumtaminn og þyki vænt um hana.
Þá segir hann það að hann búist ekki við sigri í einstaklingskeppninni í vetur en stefni að því að vera í topp 5 að lokum.
Viðtalið má horfa á hér að neðan.
„Ætlaði mér að vinna“
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur
Viking Masters mótaröðin í fullum gangi