Andvari hlaut 10 fyrir skeið

  • 7. júní 2025
  • Fréttir

Andvari og Rósa Birna Mynd:Aðsend

Annarri vikunni af vorsýningum á Rangárbökkum við Hellu lauk í dag.

Fjöldi góðra hrossa kom fram en m.a. var sett heimsmet í flokki fimm vetra hrossa.

Andvari frá Kerhóli hækkað skeiðeinkunn sýna á yfirliti úr 9,5 í 10,0 sem er önnur tían sem gefin er fyrir einstaka eiginleika í hæfileikum á árinu.

Andvari er sex vetra undan Braga frá Skriðu og Ösp frá Ytri-Bægisá I. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,32 og fyrir hæfileika 8,51 sem gerir 8,44 í aðaleinkunn. Það var Rósa Birna Þorvaldsdóttir sem sýndi Andvara. Eigandi er Þór Jónsteinsson en hann er einnig ræktandi ásamt Ingibjörgu Eiríksdóttur.

 

IS2019164301 Andvari frá Kerhóli
Örmerki: 352205000006722
Litur: 35000 Jarpur
Ræktandi: Ingibjörg Eiríksdóttir, Þór Jónsteinsson
Eigandi: Þór Jónsteinsson
F.: IS2013165300 Bragi frá Skriðu
Ff.: IS2005157994 Óskasteinn frá Íbishóli
Fm.: IS1996288474 List frá Fellskoti
M.: IS2009265558 Ösp frá Ytri-Bægisá I
Mf.: IS1999166214 Blær frá Torfunesi
Mm.: IS1992265690 Dögg frá Eyvindarstöðum
Mál (cm): 149 – 132 – 138 – 67 – 147 – 38 – 48 – 44 – 6,6 – 32,0 – 18,5
Hófa mál: V.fr.: 9,0 – V.a.: 8,5
Sköpulag: 8,0 – 8,0 – 9,0 – 9,0 – 7,5 – 7,5 – 8,5 – 7,5 = 8,32
Hæfileikar: 8,5 – 8,5 – 10,0 – 7,5 – 7,0 – 9,0 – 8,5 – 7,0 = 8,51
Hægt tölt: 8,5

Aðaleinkunn: 8,44
Hæfileikar án skeiðs: 8,24
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,27
Sýnandi: Rósa Birna Þorvaldsdóttir
Þjálfari: Kerhólshestar ehf.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar