Anne Stine og Hæmir í sérflokki í fjórgangi

Anne Stine og Hæmir fra Hyldsbæk. Ljósmynd: Henk & Patty
Alls voru það 47 keppendur sem tóku þátt í fjórgangi. Sýningar voru misgóðar en þær bestu alveg hreint magnaðar, í forystu að lokinni forkeppni er Anne Stine Haugen á Hæmi fra Hyldsbæk með einkunnina 8,20 en þau keppa fyrir Noreg. Í viðtali við Eiðfaxa sagði Anne Stine frá því að hún hefði þurft að fara í aðgerð fyrir einungis þremur vikum og því ekki fyrirséð að hún hefði getað verið á meðal keppenda á mótinu.
Herdís Björg Jóhannsdóttir og Kormákur frá Kvistum voru fyrst í brautina af íslensku keppendunum. Sýning þeirra byrjaði vel á hægu tölti en í framhaldi af því lentu þau í vandræðum á greiða töltinu, niðurstaðan 5,87. Herdís var að vonum svekkt með frammistöðuna í viðtali sem tekið var við hana strax að lokinni forkeppni.
Þá var komið að Védísi Huld Sigurðardóttur og Ísaki frá Þjórsárbakka þau áttu góða sýningu og hlutu í einkunn 7,07 og annað sætið í ungmennaflokki að lokinni forkeppni. Hún keppir því til A-úrslita í tölti og fjórgangi en ljóst er að heimsmeistaratitill í samanlögðum fjórgangsgreinum er runninn henni úr greipum.
Helga Una Björnsdóttir og Ósk frá Stað halda áfram að standa sig vel en þær eru efstar í slaktaumatölti ásamt Aðalheiði Önnu og hlutu nú 7,47 í fjórgangi. Helga var kát og glöð með sýninguna í fjórgangi og spennt fyrir framhaldinu en þær keppa til úrslita í fjórgangi og slaktaumatölti á sunnudaginn.
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Hulinn frá Breiðstöðum voru á meðal þeirra para sem búist var við að yrðu í toppbaráttunni í fjórgangi en á það verður ekki reynt þar sem skeifa datt undan Hulinn og því gátu þau ekki lokið við sýna sýningu. Jóhanna Margrét Snorradóttir var síðust íslensku knapanna í brautina á Össu frá Miðhúsum. Þær náðu ekki fram sínu allra besta og hlutu í einkunn 7,07 sem dugir þeim til B-úrslita þar sem þær eru til alls líklegar.
Úrslitahestar í fullorðinsflokki
# | Knapi | Hestur | Einkunn |
1 | Anne Stine Haugen | Hæmir fra Hyldsbæk | 8.20 |
2 | Lilja Thordarson | Hjúpur frá Herríðarhóli | 7.57 |
2 | Lisa Schürger | Kjalar frá Strandarhjáleigu | 7.57 |
4 | Christina Lund | Lukku-Blesi frá Selfossi | 7.50 |
5 | Helga Una Björnsdóttir | Ósk frá Stað | 7.47 |
6 | James Boás Faulkner | Hálfmáni frá Steinsholti | 7.40 |
7 | Jóhann Rúnar Skúlason | Evert fra Slippen | 7.37 |
8 | Frederikke Stougård | Austri frá Úlfsstöðum | 7.30 |
9 | Lea Sigmarsson | Heiðmundur frá Álfhólum | 7.10 |
10 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Assa frá Miðhúsum | 7.07 |
Úrslitahestar í ungmennaflokki
# | Knapi | Hestur | Einkunn |
1 | Daniel Rechten | Óskar från Lindeberg | 7.10 |
2 | Védís Huld Sigurðardóttir | Ísak frá Þjórsárbakka | 7.07 |
3 | Amanda Frandsen | Tinna frá Litlalandi | 6.93 |
4 | Leni Köster | Rögnir frá Hvoli | 6.70 |
5 | Thea Hansen | Varða frá Feti | 6.67 |
6 | Lina-Marie Neuber | Safír frá Kvistum | 6.47 |
7 | Miina Sarsama | Freir fra Kaakkola | 6.43 |
7 | Saga Knutsen Eiriksdottir | Ýmir frá Selfossi | 6.43 |
9 | Mylou Suylen | Frami frá Gunnlaugsstöðum | 6.40 |
10 | Dromelot van Helvoort | Glymjandi frá Íbishóli | 6.30 |
10 | Julie Thorsbye Andersen | Aron frá Þóreyjarnúpi | 6.30 |