Hestamannafélagið Léttir Áróra og Tvistur með besta tíma ársins í 100 m. skeiði

  • 14. júní 2025
  • Fréttir
Um helgina fer fram WR íþróttamót hjá hestamannafélaginu Létti.

Í gær fór fram m.a. keppni í 100 m. skeiði á WR íþróttamóti Léttis á Akureyri og var boðið upp á fullorðinsflokk og ungmennaflokk.

Besta tímanum náðu þau Áróra Heiðbjört Hreinsdóttir á Tvisti frá Garðshorni eða 7,28 sek. sem er jafnframt besti tími ársins í 100 m. skeiði. Áróra og Tvistur kepptu í ungmennaflokki.

Sveinbjörn Hjörleifsson og Prinsessa frá Dalvík áttu besta tímann í fullorðinsflokki eða 7,73 sek.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr 100 m. skeiðinu en hægt er að sjá allar helstu niðurstöður og dagskrá mótsins inn á HorseDay

Flugskeið 100m P2

Fullorðinsflokkur

Sæti Knapi Hross Tími
1 Sveinbjörn Hjörleifsson Prinsessa frá Dalvík 7,73
2 Atli Freyr Maríönnuson Elma frá Staðarhofi 7,93
3 Þorsteinn Björn Einarsson Etýða frá Torfunesi 8,06
4 Atli Guðmundsson Spakur frá Húsanesi 8,08
5 Þorsteinn Björn Einarsson Gerpla frá Hofi á Höfðaströnd 8,28
6 Hjörleifur Helgi Sveinbjarnarson Gjafar frá Hrafnsstöðum 8,69
7 Þorsteinn Björn Einarsson Óskar frá Eystri-Sólheimum 9,43
8 Sigrún Rós Helgadóttir Kná frá Steinnesi 9,83
9 Björgvin Helgason Krókur frá Kommu 10,32

Ungmennaflokkur

Sæti Knapi Hross Tími
1 Áróra Heiðbjört Hreinsdóttir Tvistur frá Garðshorni 7,28
2 Viktor Arnbro Þórhallsson Drottning frá Ysta-Gerði 8,46
3 Tanja Björt Magnúsdóttir Snjall frá Íbishóli 11,12

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar