Hestamannafélagið Sleipnir B úrslitum lokið á Íslandsmótinu

  • 28. júní 2025
  • Fréttir

Barbara Wenzl og Loftur frá Kálfsstöðum unnu B úrslitin í fjórgangi í meistaraflokki Mynd: Gunnhildur Ýrr

Í dag voru riðin B úrslit í öllum greinum og flokkum Íslandsmótsins.

Í tölti T1 voru það Brynja Kristinsdóttir á Sunnu frá Haukagili Hvítársíðu í meistaraflokki og Eva Kærnested á Loga frá Lerkiholti í ungmennaflokki sem unnu sér inn keppnisrétt í A úrslitum á morgun.

Hanne Smidesang á Tóni frá Hjarðartúni vann B úrslitin í slaktaumatölti í meistaraflokki og í ungmennaflokki var það Matthías Sigurðsson á Kosti frá Þúfu í Landeyjum. Matthías vann einnig b úrslitin í fjórgangi á Fáki frá Kaldbak og í meistaraflokki var það Barbara Wenzl á Lofti frá Kálfsstöðum sem bar sigur úr býtum.

Í fimmgangi meistara var það Teitur Árnason á Leyni frá Garðshorni á Þelamörk sem stóðu efstir í b úrslitinum og í ungmennaflokki var það Sara Dís Snorradóttir á Kvisti frá Reykjavöllum.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr B úrslitum dagsins en síðasti dagur Íslandsmóts er á morgun og hefst keppni kl. 10:00 á 100 m. skeiði.

B úrslit – TÖLT T1 – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Brynja Kristinsdóttir Sunna frá Haukagili Hvítársíðu 8,33
7 Jóhanna Margrét Snorradóttir Kormákur frá Kvistum 8,11
8 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ 8,06
9 Teitur Árnason Fjalar frá Vakurstöðum 7,78
10 Gústaf Ásgeir Hinriksson Assa frá Miðhúsum 5,67

B úrslit – TÖLT T1 – Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Eva Kærnested Logi frá Lerkiholti 7,33
7 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Muninn frá Bergi 7,28
8 Svandís Aitken Sævarsdóttir Huld frá Arabæ 7,17
9 Þórgunnur Þórarinsdóttir Rut frá Hestkletti 6,83
10 Guðný Dís Jónsdóttir Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ 6,78

B úrslit – TÖLT T2 – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Hanne Oustad Smidesang Tónn frá Hjarðartúni 8,04
7-9 Glódís Rún Sigurðardóttir Ottesen frá Ljósafossi 7,88
7-9 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bútur frá Litla-Dal 7,88
7-9 Gústaf Ásgeir Hinriksson Gýmir frá Skúfslæk 7,88
10 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum 7,83

B úrslit – TÖLT T2 – Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
7 Matthías Sigurðsson Kostur frá Þúfu í Landeyjum 7,21
8 Herdís Björg Jóhannsdóttir Kjarnveig frá Dalsholti 6,92
9 Kolbrún Sif Sindradóttir Bylur frá Kirkjubæ 6,88
10 Unnur Erla Ívarsdóttir Víðir frá Tungu 6,75
11 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Polka frá Tvennu 6,71

B úrslit – FJÓRGANGUR V1 – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Barbara Wenzl Loftur frá Kálfsstöðum 7,83
7 Sara Sigurbjörnsdóttir Fluga frá Oddhóli 7,77
8-9 Þorgeir Ólafsson Auðlind frá Þjórsárbakka 7,60
8-9 Gústaf Ásgeir Hinriksson Assa frá Miðhúsum 7,60
10 Viðar Ingólfsson Logi frá Staðartungu 7,30

B úrslit – FJÓRGANGUR V1 – Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
7 Matthías Sigurðsson Fákur frá Kaldbak 7,13
8-9 Steinunn Lilja Guðnadóttir Assa frá Þúfu í Landeyjum 6,97
8-9 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Muninn frá Bergi 6,97
10 Þórey Þula Helgadóttir Hrafna frá Hvammi I 6,83
11 Guðný Dís Jónsdóttir Hraunar frá Vorsabæ II 6,27

B úrslit – FIMMGANGUR F1 – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Teitur Árnason Leynir frá Garðshorni á Þelamörk 7,67
7 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 7,31
8 Elvar Þormarsson Djáknar frá Selfossi 7,29
9 Helga Una Björnsdóttir Hetja frá Hofi I 7,12
10 Árni Björn Pálsson Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 5,24

B úrslit – FIMMGANGUR F1 – Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Sara Dís Snorradóttir Kvistur frá Reykjavöllum 6,90
7 Herdís Björg Jóhannsdóttir Skorri frá Vöðlum 6,79
8 Kristján Árni Birgisson Artemis frá Neðri-Mýrum 6,40
9 Sigurður Dagur Eyjólfsson Þór frá Meðalfelli 6,31
10 Katrín Ösp Bergsdóttir Alfreð frá Valhöll 5,43

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar