Eiðfaxi TV Bein útsending frá Hrossaræktarráðstefnunni

  • 8. nóvember 2025
  • Fréttir
Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs í hrossarækt í beinni útsendingu

Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs í hrossarækt fer fram í reiðhöll Spretts, í dag, laugardag 8. nóvember og byrjar klukkan 13:00. Sýnt er beint frá ráðstefnunni á EiðfaxaTV í opinni dagskrá og hvetjum við fólk til að fylgjast með.

HORFA Á BEINA ÚTSENDINGU

Á dagskrá eru afar áhugaverðir fyrirlestrar um áhrif erfða á gangtegundir hestsins og árangur af skimun og úrvali gegn spatti í íslenska hestinum, yfirferð um hrossaræktarárið og verðlaunaveitingar.

  • 13:00 Setning – Nanna Jónsdóttir formaður fagráðs og deildar hrossabænda hjá Bændasamtökum Íslands
  • 13:10 Hrossaræktarárið 2025 – Þorvaldur Kristjánsson
  • 13:30 Heiðursverðlaunahryssur fyrir afkvæmi 2025 og afkvæmahestar heiðraðir
  • 13:50 Verðlaunaveitingar:
    • Verðlaun, hæsta litförótta hryssa ársins í kynbótadómi
    • Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)
    • Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Alhliða hross (aldursleiðrétt)
    • Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Klárhross (aldursleiðrétt)
  • Kaffihlé
  • 14:15 Heiðrún Sigurðardóttir – Erfðafræðilegur grunnur gangtegunda íslenska hestsins: Niðurstöður, hagnýting og næstu skref
  • 14:40 Sigríður Björnsdóttir – Spatt í íslenska hestinum og árangur af skimun fyrir sjúkdómnum
  • 15:25 Hvatningarverðlaun – ungur kynbótaknapi
  • 15:30 Viðurkenningar fyrir tilnefnd ræktunarbú ársins 202

Fundarslit um 16:15

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar