Nýr landsliðshópur kynntur
A-Landsliðshópurinn í hestaíþróttum árið 2026
Ísólfur Líndal A-landsliðsþjálfari Íslands í hestaíþróttum hefur nú tilkynnt A-landsliðshóp fyrir árið 2026.
Hópurinn er skipaður 24 knöpum sem leggja upp í vegferð í átt að Norðurlandamóti í Svíþjóð á komandi sumri og síðan heimsmeistaramótið í Rieden í Þýskalandi árið 2027.
„Allar knapar í hópnum hafa náð framúrskarandi árangri í hinum ýmsu greinum, eru með spennandi og sterkan hestakost fyrir komandi tímabil og skýr markmið um árangur og þar með vakið athygli landsliðsþjálfara og fengið pláss í þessum A-landsliðshópi,“ segir í tilkynningu frá LH.
Í hópnum eru fjórir ríkjandi heimsmeistarar frá því á heimsmeistaramótinu í Sviss síðastliðið sumar, þau Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir heimsmeistari í slaktaumatölti, Árni Björn Pálsson heimsmeistari í tölti, Kristján Árni Birgisson heimsmeistari í 100m og 250m skeiði í ungmennaflokki og Védís Huld Sigurðardóttir heimsmeistari í tölti og fjórgangi í ungmennaflokki
Aðrir knapar í landsliðshópi LH 2026 eru:
- Arnhildur Helgadóttir, Geysi
- Ásmundur Ernir Snorrason, Geysi
- Benjamín Sandur Ingólfsson, Geysi
- Brynja Kristinsdóttir, Sörla
- Daníel Gunnarsson, Skagfirðingi
- Eyrún Ýr Pálsdóttir, Fáki
- Flosi Ólafsson, Borgfirðingi
- Guðmunda Ellen Sigurðardóttir, Sleipni
- Guðmundur Björgvinsson, Geysi
- Glódís Rún Sigurðardóttir, Sleipni
- Gústaf Ásgeir Hinriksson, Geysi
- Hanna Rún Ingibergsdóttir, Geysi
- Hans Þór Hilmarsson, Geysi
- Helga Una Björnsdóttir, Þyt
- Jóhanna Margrét Snorradóttir, Mána
- Jakob Svavar Sigurðsson, Dreyra
- Sigurður Vignir Matthíasson, Fáki
- Teitur Árnason, Fáki
- Viðar Ingólfsson, Fáki
- Þórarinn Eymundsson, Skagfirðingi
Nýr landsliðshópur kynntur
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Stefnir í jafna og spennandi keppni í slaktaumatölti!