Blue Lagoon mótaröðin: Keppt í fimmgangi í Samskipahöllinni

  • 24. febrúar 2026
  • Fréttir
Mótið fer fram 4.mars

Næsta mót í hinni vinsælu Blue Lagoon mótaröð fer fram miðvikudaginn 4. mars í Samskipahöllinni í Kópavogi. Að þessu sinni verður keppt í fimmgangi og er mótið opið öllum knöpum í yngri flokkum.

Mótið hefst stundvíslega klukkan 17:00 og verður sýnt í beinni útsendingu á Eiðfaxi TV.

Flokkar og fyrirkomulag

Boðið er upp á flokka fyrir börn, unglinga og ungmenni. Athugið að keppendur safna stigum í gegnum mótaröðina og verða stigahæstu knapar verðlaunaðir á lokamótinu.

Barnaflokkur (10–13 ára): Skipt í minna vana (F3) og meira vana (F2).

Unglingaflokkur (14–17 ára): Skipt í minna vana (F3) og meira vana (F2).

Ungmennaflokkur (18–21 árs): Eingöngu F2.

Mikilvægt: Knapar sem hafa keppt á stórmótum (LM/ÍS) eru hvattir til að skrá sig í flokk meira vanra. Sex efstu knapar fara í úrslit, en ekki verða riðin B-úrslit.

Skráning og takmarkanir

Skráning hefst 23. febrúar og lýkur á miðnætti sunnudaginn 1. mars. Skráningargjald er 4.500 kr. og fer fram á Sportfeng.

Vegna fjöldatakmarkana er fólk hvatt til að skrá sig snemma. Aðeins eru 15 pláss í boði í hverjum flokki og má hver knapi eingöngu skrá tvo hesta.

Fjöldatakmarkanir eru eftirfarandi:
Börn minna vanir – 15 pláss
Börn meira vanir – 15 pláss
Unglingar minna vanir – 15 pláss
Unglingar meira vanir – 15 pláss
Ungmenni – 15 pláss

Æfingatími og upplýsingar

Boðið verður upp á æfingatíma í Samskipahöllinni sunnudaginn 1. mars kl. 19:00–21:00. Mælst er til þess að börn og unglingar nýti fyrri hlutann en ungmenni þann síðari.

Ráslistar: Birtast þriðjudaginn 3. mars í HorseDay appinu.

Veitingar: Salurinn verður opinn með veitingasölu á meðan móti stendur.

Fyrirspurnir: Sendist á bluelagoon@sprettur.is.

Við hvetjum alla til að mæta og fylgjast með flottri frammistöðu knapa framtíðarinnar!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar