Dagur reiðmennskunnar í dag

  • 21. mars 2026
  • Fréttir
Dagur reiðmennskunnar og Stórsýning Fáks fer fram í dag í Lýsishöllinni í Víðidal.

Á Degi reiðmennskunnar koma fram reiðkennaraefni Háskólans á Hólum með sýnikennslu. Sýningin hefst 14:00 og er frítt inn á sýnikennsluna. Að lokinni sýningu verður hægt að kynna sér námið á Hólum í anddyri reiðhallarinnar. Þar verða nokkrir nemendur tilbúnir að svara spurningum sem tilvonandi umsækjendur hafa.

Um kvöldið fer fram Stórsýning Fáks og hefst sýningin klukkan 20:00. Á eftir sýningunni í anddyri reiðhallarinnar verður trúbator partý með Sigvalda Helga Gunnarssyni.

Hægt er að kaupa aðgangsmiða á Stórsýninguna á laugardeginum frá 14:00 og í hurð um kvöldið.

Aðgangseyrir:

Fullorðnir 3.500 kr
Unglingar og ungmenni 2.500 kr
Börn 8-13 ára 1.500 kr.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar