Dalvar og Daníel settu heimsmet

Dalvar frá Efsta-Seli, sýnandi Daníel Jónsson Mynd: Nicki Pfau
Dalvar var sýndur í dag á vorsýningu á Rangárbökkum og hlaut hann í aðaleinkunn 8,99 sem er hæsta einkunn sem fimm vetra hross hefur hlotið í kynbótadómi. Jafnframt er þetta annar hæsti dómur sem hross hefur hlotið frá upphafi en hærri er Viðar frá Skör (9.04) og með sömu einkunn Sindri frá Hjarðartúni (8.99).
Dalvar hlaut fyrir sköpulag 9.01 og fyrir hæfileika 8.98 sem gerir 8.99 í aðaleinkunn. Hann hlaut m.a. 9,5 fyrir hófa, prúðleika, fet og samstarfsvilja og 9,0 fyrir háls/herðar og bóga, bak og lend, samræmi, fótagerð, tölt, skeið og fegurð í reið.
Það var Daníel Jónsson sem sýndi hestinn en hann er jafnframt eigandi ásamt Ásbirni Helga Árnasyni og ræktandi ásamt Hilmari Sæmundssyni.
Dalvar er undan Adrían frá Garðshorni á Þelamörk og Lóu frá Efsta-Seli en margir muna eflaust eftir Dalvari á Landsmótinu í fyrra þar sem hann stóð efstur í flokki fjögurra vetra stóðhesta.
Hér fyrir neðan er dómurinn hans Dalvars frá því í dag en yfirlit er á föstudaginn.
IS2020186644 Dalvar frá Efsta-Seli
Örmerki: 352098100103710
Litur: 25000 Brúnn
Ræktandi: Daníel Jónsson, Hilmar Sæmundsson
Eigandi: Ásbjörn Helgi Árnason, Daníel Jónsson
F.: IS2013164067 Adrían frá Garðshorni á Þelamörk
Ff.: IS1997158469 Hágangur frá Narfastöðum
Fm.: IS1994238714 Elding frá Lambanesi
M.: IS2015286645 Lóa frá Efsta-Seli
Mf.: IS2007186189 Arion frá Eystra-Fróðholti
Mm.: IS1999286988 Lady frá Neðra-Seli
Mál (cm): 152 – 138 – 141 – 67 – 141 – 38 – 48 – 42 – 6,7 – 31,0 – 18,5
Hófa mál: V.fr.: 8,8 – V.a.: 7,9
Sköpulag: 8,5 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 8,0 – 9,5 – 9,5 = 9,01
Hæfileikar: 9,0 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 9,5 – 9,0 – 9,5 = 8,98
Hægt tölt: 8,5
Aðaleinkunn: 8,99
Hæfileikar án skeiðs: 8,97
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,98
Sýnandi: Daníel Jónsson
Þjálfari:
