Dögg frá Kvistum fékk 10 fyrir hægt stökk

Í gær sýndi Vera Evi Schneiderchen sex vetra hryssuna Dögg frá Kvistum og hlaut hún m.a. 10 fyrir hægt stökk. Er hún áttunda hrossið til að fá 10,0 fyrir hægt stökk.
Dögg er undan Kveik frá Stangarlæk og Dögun frá Kvistum en ræktandi er Kvistir ehf. og eigendur eru þau Dagný Lind Kristjánsdóttir og Valur Ásmundsson. Hlaut Dögg fyrir sköpulag 8,05 og fyrir hæfileika 8,48 sem gerir 8,33 í aðaleinkunn. Hún hlaut m.a. 10 fyrir hægt stökk og 9,5 fyrir fegurð í reið en dóminn hennar er hægt að sjá hér fyrir neðan.
IS2019281960 Dögg frá Kvistum
Örmerki: 352098100086342
Litur: 25000 Brúnn
Ræktandi: Kvistir ehf.
Eigandi: Valur Ásmundsson
F.: IS2012188095 Kveikur frá Stangarlæk 1
Ff.: IS2007186104 Sjóður frá Kirkjubæ
Fm.: IS2004288562 Raketta frá Kjarnholtum I
M.: IS2007281963 Dögun frá Kvistum
Mf.: IS1999186987 Þytur frá Neðra-Seli
Mm.: IS1997287042 Orka frá Hvammi
Mál (cm): 141 – 128 – 134 – 65 – 141 – 37 – 49 – 43 – 6,3 – 28,0 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 8,2 – V.a.: 7,8
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,5 – 7,5 – 7,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 = 8,05
Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 5,0 – 9,0 – 10,0 – 9,0 – 9,5 – 8,5 = 8,48
Hægt tölt: 8,5
Aðaleinkunn: 8,33
Hæfileikar án skeiðs: 9,11
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,74
Sýnandi: Vera Evi Schneiderchen
Þjálfari: