Dómnefndir á kynbótasýningum vorsins
Það verður í nógu að snúast hjá Þorvaldi Kristjánssyni, Eyþóri Einarssyni og þeirra kollegum í vor.
Kynbótasýningar á Íslandi hefjast í maí. Fram að Landsmóti eru alls fjórtan sýningar fyrirhugaðar og nú hafa þær birst á Worldfeng ásamt upplýsingum um starfsfólk á hverri sýningu. Skráning á sýningarnar hefst þann 28.apríl.
Sá sýningarstaður þar sem flestar sýningar eru fyrirhugaðar eru Rangárbakka við Hellu en alls verður boðið upp á sýningar þar sex vikur í röð frá 18.maí til 24.júní. Á höfuðborgarsvæðinu verður boðið upp á þrjár sýningar tvær á Sörlastöðum í Hafnarfirði og eina í Víðidalnum í Reykjavík. Vestanlands er fyrirhuguð eina vika á Mið-Fossum í Borgarfirði. Þrjár vikur eru fyrirhugaðar á Landsmótsstaðnum Hólum í Hjaltadal og ein vika á Akureyri.
Dómnefnd á hverri sýningu fyrir, dagsetning og hámarksfjöldi hrossa
Rangárbakkar
| Dómnefnd | Dagsetning | Fj. |
| Þorvaldur Kristjánsson, Elisabeth Trost og Sveinn Ragnarsson | 18.-21.maí | 90 |
| Þorvaldur Kristjánsson, Svanhildur Hall og Víkingur Gunnarsson | 26.-29.maí | 90 |
| Eyþór Einarsson, Elistabeth Trost og Óðinn Örn Jóhannsson | 1.-5.júní | 120 |
| Guðlaugur Antonsson, Guðbjörn Tryggvason og Heiðrún Sigurðardóttir | 8.-11.júní | 90 |
| Víkingur Gunnarsson, Eyþór Einarsson og Halla Eygló Sveinsdóttir | 15.-19.júní | 90 |
| Þorvaldur Kristjánsson, Halla Eygló Sveinsdóttir og Sveinn Ragnarsson | 22.-24.júní | 60 |
Hólar
| Dómnefnd | Dags. | Fj. |
| Guðlaugur Antonsson, Guðbjörn Tryggvason, Steinunn Anna Halldórsdóttir | 1.-5.júní | 120 |
| Þorvaldur Kristjánsson, Elsa Mandal og Guðbjörn Tryggvason | 15.-19.júní | 90 |
| Eyþór Einarsson, Gísli Guðjónsson og Heiðrún Sigurðardóttir | 22.-24.júní | 60 |
Sörlastaðir
| Dómnefnd | Dagsetning | Fj. |
| Þorvaldur Kristjánsson, Heimir Gunnarsson og Jón Vilmundarson | 1.-5.júní | 120 |
| Sveinn Ragnarsson, Elsa Mandal og Óðinn Örn Jóhannsson | 8.-12.júní | 120 |
Víðidalur
| Dómnefnd | Dagsetning | Fj. |
| Guðlaugur Antonsson, Elisabeth Jansen og Gísli Guðjónsson | 15.-19.júní | 90 |
Miðfossar
| Dómnefnd | Dagsetning | Fj. |
| Þorvaldur Kristjánsson, Elisabeth Trost og Jens Fuchtenschnieder | 8.-12.júní | 120 |
Akureyri
| Dómnefnd | Dagsetning | Fj. |
| Friðrik Már Sigurðsson, Steinunn Anna Halldórsdóttir og Svanhildur Hall | 8.-12.júní | 120 |
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Fjóla og Spira sigra í fimmgangi Áhugamannadeildar Norðurlands