Dregið í rásröð Gæðingalistar í Meistaradeild Líflands
Fallegt samspila knapa og hests er lykilatriði í keppni í gæðingalist. Ljósmynd: Carolin Giese/Meistaradeild Líflands
Það styttist í næstu grein í Meistaradeild Líflands en á föstudaginn verður keppt í gæðingalist. Keppni hefst kl. 19:00 á föstudaginn næsta, 6.mars. Keppnin fer fram í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt geta horft á keppnina í beinni útsendingu á Eiðfaxa TV en það er um að gera að tryggja sér áskrift sem fyrst.
TopReiter býður gestum frítt í stúkuna á föstudaginn og verður hlaðborðið á sínum stað en þeir sem panta fyrirfram tryggja sér frátekið sæti í stúkunni. HÉR er hægt að panta á hlaðborðið.
Hér fyrir neðan getur fylgst með þegar dregið verður í rásröð fyrir gæðingalist og þá sjáum við hvaða hesta knapar deildarinnar mæta með á föstudaginn. Útsending frá drættinum hefst klukkan 20:00. Umsjónarmaður er Arnar Bjarki Sigurðsson og með honum er að þessu sinni Ásgeir Svan Herbertsson.

Dregið í rásröð Gæðingalistar í Meistaradeild Líflands
Katla Sif og lið Fornusanda á toppnum í 1.deild Hringdu