Dregið í rásröð í Meistaradeildinni
Aðalheiður Anna og Flóvent unnu fjórganginn í Meistaradeildinni fyrir ári síðan
Það er alltaf mikil eftirvænting fyrir fjórgangnum í Meistaradeildinni en fyrir mörgum markar hann upphafið á keppnistímabilinu. Keppni hefst kl. 19:00 á fimmtudaginn næsta, 22. janúar. Keppnin fer fram í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli og er frítt inn í boði Toyota á Selfossi.
ÁB veitingar munu bjóða upp á hlaðborð sem færir ykkur einnig frátekið sæti í stúkunni á besta stað ef pantað er fyrirfram. Tilvalið er að mæta með vinum eða fjölskyldu og eiga skemmtilega kvöldstund með bestu gæðingum landsins. Húsið opnar kl. 17:00 og fara pantanir fram á hlaðborðið HÉR.
Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt geta horft á keppnina í beinni útsendingu á Eiðfaxa TV en það er um að gera að tryggja sér áskrift sem fyrst.
Hér fyrir neðan getur fylgst með þegar dregið verður í rásröð fyrir fjórganginn og þá sjáum við hvaða hesta knapar deildarinnar mæta með á fimmtudaginn. Ráslisti fjórgangsins hefur undanfarin ár verið ein mest lesna frétt Eiðfaxa sem sýnir hversu mikil eftirvæntingin er fyrir deildinni.
Fylgstu með í kvöld þegar dregið verður í rásröð kl. 18:30 í opinni dagskrá á vef Eiðfaxa og á EiðfaxaTV.
Dregið í rásröð í Meistaradeildinni
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur