„Ég var í stuði og hesturinn var í stuði“
![](https://eidfaxi.is/wp-content/uploads/2024/07/Screenshot-2024-07-02-at-22.52.10-800x444.png)
Þórey Þula Helgadóttir keppir fyrir hestamannafélagið Jökul. Þórey var í A flokknum í dag og endaði í sjötta sæti í A flokki gæðinga á hesti sínum Kjalari frá Hvammi. Flottur árangur hjá henni en hún er einnig með hryssuna Hröfnu frá Hvammi I í milliriðlum í ungmennaflokki. Hjörvar hitti Þóreyju eftir forkeppni í A flokki og spjallaði smá við hana.