Elimar og lið ISI Pack sigurvegarar dagsins

  • 8. febrúar 2026
  • Fréttir
Fyrsta mótinu í Meistaradeild Líflands og æskunnar lokið

Fyrsta mótið í Meistaradeild Líflands og æskunnar fór fram í dag í Lýsishöllinni í Reykjavík. Keppt var í fjórgangi og alls voru það 40 knapar sem tóku þátt frá 10 mismunandi keppnisliðum. Í þessar deild keppa knapar á aldrinum 13-18 ára og eru í haust tíu ár frá stofnun deildarinnar sem óhætt er að segja að hafi lyft keppendum í þessum aldursflokki á hærra stig.

Sigurvegari dagsins var Elimar Elvarsson á hryssunni Sölku frá Hólateigi, en Elimar keppir fyrir lið ISI Pack. Þau leiddu að lokinni forkeppni með einkunna 6,90 og héldu þeirri forystu í úrslitum og uppskáru þar einkunnina 6,97. Annar varð liðsfélagi Elimars, Gabríel Liljendahl Friðfinnsson sem sat Litrík frá Miðengi. hlaut hann 6,70 í forkeppni og 6,87 í úrslitum. Jafnar í þriðja til fjórða sæti urðu svo þær Álfheiður Þóra Ágústsdóttir á Óskamey frá Íbishóli og Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á Þyt frá Skáney með einkunnina 6,83 í úrslitum.

Stigahæsta liðið í fjórgangi var lið ISI Pack en auk þeirra Elimars og Gabríels eru liðsmenn þess Elsa Kristín Grétarsdóttir og Jórunna Edda Antonsdóttir sem báðar kepptu til B-úrslita. Stórgóður árangur hjá þeim að allir knapar skuli hafa komist í úrslit.

Næsta mót fer fram 22.febrúar þegar keppt verður í slaktaumatölti í reiðhöll Hestamannafélagsins Sörla að Sörlastöðum.

 

Niðurstöður í fjórgangi

 

Fjórgangur V1
Unglingaflokkur
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Elimar Elvarsson Salka frá Hólateigi 6,90
2 Álfheiður Þóra Ágústsdóttir Óskamey frá Íbishóli 6,80
3-4 Viktor Leifsson Seifur frá Brekkubæ 6,77
3-4 Kristín Eir Hauksdóttir Holake Þytur frá Skáney 6,77
5 Gabríel Liljendal Friðfinnsson Litríkur frá Miðengi 6,70
6-7 Bertha Liv Bergstað Hólmi frá Kaldbak 6,60
6-7 Elsa Kristín Grétarsdóttir Flygill frá Sólvangi 6,60
8 Kristín Rut Jónsdóttir Fluga frá Garðabæ 6,57
9 Linda Guðbjörg Friðriksdóttir Prins frá Ljósafossi 6,53
10 Jórunn Edda Antonsdóttir Blær frá Tjaldhólum 6,53
11 Kristín María Kristjánsdóttir Skjóni frá Skálakoti 6,53
12 Árný Sara Hinriksdóttir Moli frá Aðalbóli 1 6,53
13 Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir Radíus frá Hofsstöðum 6,43
14-15 Fríða Hildur Steinarsdóttir Frami frá Hjarðarholti 6,40
14-15 Elísabet Líf Sigvaldadóttir Fenrir frá Kvistum 6,40
16 Loftur Breki Hauksson Fannar frá Blönduósi 6,37
17 Arnór Darri Kristinsson Brandur frá Akureyri 6,33
18 Sigríður Fjóla Aradóttir Kilja frá Korpu 6,27
19-20 Erla Rán Róbertsdóttir Greipur frá Haukadal 2 6,17
19-20 Ylva Sól Agnarsdóttir Eik frá Meðalfelli 6,17
21-23 Gabríela Máney Gunnarsdóttir Sjarmur frá Böðmóðsstöðum 2 6,13
21-23 Sigurður Ingvarsson Liljar frá Varmalandi 6,13
21-23 Apríl Björk Þórisdóttir Lilja frá Kvistum 6,13
24-25 Sigríður Elva Elvarsdóttir Muni frá Syðra-Skörðugili 6,10
24-25 Eyvör Vaka Guðmundsdóttir Skeleggur frá Ósabakka 2 6,10
26 Hrefna Kristín Ómarsdóttir Aðventa frá Víðidal 6,07
27 Hilmir Páll Hannesson Grímur frá Skógarási 6,03
28-29 Emma Rún Sigurðardóttir Valíant frá Efra-Langholti 6,00
28-29 Ásthildur Viktoría Sigurvinsdóttir Baldur frá Margrétarhofi 6,00
30-31 Hjördís Antonía Andradóttir Ágúst frá Oddhóli 5,97
30-31 Una Björt Valgarðsdóttir Sigurpáll frá Varmalandi 5,97
32 Svava Marý Þorsteinsdóttir Þyrla frá Haukholtum 5,90
33 Sól Jónsdóttir Mær frá Bergi 5,83
34 Bryndís Anna Gunnarsdóttir Foringi frá Laxárholti 2 5,77
35 Ragnar Dagur Jóhannsson Alúð frá Lundum II 5,70
36 Elísabet Benediktsdóttir Jarl frá Hrafnagili 5,63
37 Íris Thelma Halldórsdóttir Skuggi frá Austurey 2 5,60
38 Hákon Þór Kristinsson Tenór frá Litlu-Sandvík 5,10
39 Ísabella Helga Játvarðsdóttir Ylva frá Margrétarhofi 4,00
40 Bjarni Magnússon Pjakkur frá Gunnarsstöðum 3,93
B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Elsa Kristín Grétarsdóttir Flygill frá Sólvangi 6,87
7 Kristín Rut Jónsdóttir Fluga frá Garðabæ 6,70
8 Jórunn Edda Antonsdóttir Blær frá Tjaldhólum 6,67
9 Linda Guðbjörg Friðriksdóttir Prins frá Ljósafossi 6,60
10 Bertha Liv Bergstað Hólmi frá Kaldbak 6,50
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Elimar Elvarsson Salka frá Hólateigi 6,97
2 Gabríel Liljendal Friðfinnsson Litríkur frá Miðengi 6,87
3-4 Álfheiður Þóra Ágústsdóttir Óskamey frá Íbishóli 6,83
3-4 Kristín Eir Hauksdóttir Holake Þytur frá Skáney 6,83
5 Viktor Leifsson Seifur frá Brekkubæ 5,47

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar