Elísabet Líf sigurvegari í gæðingalist
Elísabet Líf Sigvaldadóttir og Fenrir frá Kvistum eru sigurvegarar í Gæðingalist í Meistaradeild Líflands og æskunnar
Keppni í gæðingalist í Meistaradeild Líflands og æskunnar fór fam í gær í reiðhöll Hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ. Alls voru þeir 39 knaparnir sem tóku þátt og var fróðlegt að fylgjast með þessum ungu knöpum takast á við jafn krefjandi verkefni og gæðingalist er.
Sigurvegari dagsins var Elísabet Líf Sigvaldadóttir á Fenri frá Kvistum með einkunnina 7,03. í öðru sæti varð Gabríel Liljendal á Ólsen frá Egilsá með 6,93 í einkunn og í þriðja til fjórða sætinu urðu jafnar þær Álfheiður Þóra Ágústsdóttir á Óskamey frá Íbishóli og Apríl Björk Þórisdóttir á Sikli frá Árbæjarhjáleigu með 6,90 í einkunn.
Lið IsiPack var stigahæsta lið í gæðingalistinni með 73 stig. Liðmenn þess eru þau Elimar Elvarsson, Elsa Kristín Grétarsdóttir, Gabríel Lillendal og Jórunn Edda Antonsdóttir.

Lið IsiPack f.v. Elsa Kristín Grétarsdóttir, Elimar Elvarsson, Gabríel Liljendal og Jórunn Edda Antonsdóttir
Heildarniðurstöður úr gæðingalistinni
1. Elísabet Líf Sigvaldadóttir Fenrir frá Kvistum 7.03
2. Gabríel Liljendal Ólsen frá Egilsá 6.93
3. Álfheiður Þóra Ágústsdóttir Óskamey frá Íbishóli 6.90
4. Apríl Björk Þórisdóttir Sikill frá Árbæjarhjáleigu II 6.90
5. Kristín Rut Jónsdóttir Fluga frá Garðabæ 6.77
6. Kristín María Kristjánsdóttir Skjóni frá Skálakoti 6.53
7. Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir Gustur frá Efri-Þverá 6.53
8. Elimar Elvarsson Salka frá Hólateigi 6.50
9. Elsa Kristín Grétarsdóttir Flygill frá Sólvangi 6.50
10. Bertha Liv Bergstað Hólmi frá Kaldbak 6.50
11. Hrefna Kristín Ómarsdóttir Aðventa frá Víðidal 6.40
12. Árný Sara Hinriksdóttir Moli frá Aðalbóli 1. 6.33
13.-14. Ísabella Helga Játvarðsdóttir Lávarður frá Ekru 6.27
13.-14. Emma Rún Róbertsdóttir Váli frá Efra-Langholti 6.27
15. Kristín Eir Hauksdóttir Sæld frá Skáney 6.17
16. Erla Rán Róbertsdóttir Eldir frá Efsta-Seli 6.07
17. Sigríður Elva Elvarsdóttir Muni frá Syðra-Skörðugili 6.00
18. Ylfa Sól Agnarsdóttir Náttfari frá Dýrfinnustöðum 5.97
19. Loftur Breki Hauksson Fannar frá Blönduósi 5.93
20. Svava Marý Þorsteinsdóttir Þyrla frá Haukholtum 5.90
21. Arnór Darri Kristinsson Ófeig frá Syðra-Holti 5.83
22. Bryndís Anna Gunnarsdóttir Dreyri frá Hjaltastöðum 5.80
23. Jórunn Edda Antonsdóttir Jaðar frá Hvolsvelli 5.77
24.-25. Sigríður Fjóla Aradóttir Litla-Stjarna frá Hvítárholti 5.73
24.-25. Ásthildur Viktoría Sigurvinsdóttir Hrafn frá Eylandi 5.73
26. Ragnar Dagur Jóhannsson Stormur frá Pulu 5.67
27. Viktor Leifsson Biskup frá Ólafshaga 5.53
28.-29. Sigurður Ingvason Liljar frá Varmalandi 5.50
28.-29. Una Björt Valgarðsdóttir Heljar frá Fákshólum 5.50
30.-31. Gabríela Máney Gunnarsdóttir Sif frá Þorlákshöfn 5.47
30.-31. Hilmir Páll Hannesson Grímur frá Skógarási 5.47
32.-33. Linda Guðbjörg Friðriksdóttir Roði frá Hala 5.43
32.-33. Fríða Hildur Steinarsdóttir Hlekkur frá Lyngholti 5.43
34. Sól Jónsdóttir Sandra frá Litla-Dal 5.33
35. Bjarni Magnússon Brák frá Lækjarbrekku 2. 5.27
36. Hákon Þór Kristinsson Tenór frá Litlu-Sandvík 5.10
37. Íris Thelma Halldorsdóttir Kola frá Efri-Kvíhólma 4.90
38. Elísabet Benediktsdóttir Djásn frá Tungu 4.80
39. Hjördís Antonía Andradóttir Gjöf frá Brenniborg 4.77
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Erla og Þorvaldur sigurvegarar fjórgangsins
FEIF Youth Cup 2026