Kynbótasýningar Fálki frá Traðarlandi í tíu fyrir brokk

  • 20. júní 2025
  • Fréttir
Fréttir frá vorsýningu á Sörlastöðum í Hafnarfirði

Í gær hlaut Fálki frá Traðarlandi 10,0 fyrir brokk en sýnandi var Teitur Árnason.

Fálki er sex vetra undan Freyju frá Traðarlandi, Tígulsdóttir, og Kveik frá Stangarlæk 1 en hann er annað afkvæmi Kveiks sem fær 10 fyrir einstaka eiginleika í hæfileikadómi í vor en dóttir hans, Dögg frá Kvistum, hlaut 10,0 fyrir hægt stökk fyrr í vikunni.

Fálki hlaut fyrir sköpulag 8,44 og fyrir hæfileika 8,58 sem gerir 8,53 í aðaleinkunn. Hann hlaut m.a. 10 fyrir brokk og 9,5 fyrir tölt, fegurð í reið og samstarfsvilja. Ræktendur eru þau Elva Björk Sigurðardóttir og Ríkharður Flemming Jensen.

Hér fyrir neðan er dómur Fálka.

63)
IS2019180326 Fálki frá Traðarlandi
Örmerki: 352098100084426, 352098100093881
Litur: 35000 Jarpur
Ræktandi: Elva Björk Sigurðardóttir, Ríkharður Flemming Jensen
Eigandi: Elva Björk Sigurðardóttir, Ríkharður Flemming Jensen
F.: IS2012188095 Kveikur frá Stangarlæk 1
Ff.: IS2007186104 Sjóður frá Kirkjubæ
Fm.: IS2004288562 Raketta frá Kjarnholtum I
M.: IS2007280326 Freyja frá Traðarlandi
Mf.: IS1996157330 Tígull frá Gýgjarhóli
Mm.: IS1989235150 Blökk frá Kalastaðakoti
Mál (cm): 145 – 130 – 136 – 64 – 143 – 39 – 48 – 43 – 6,3 – 29,0 – 19,0
Hófa mál: V.fr.: 9,1 – V.a.: 8,9
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 7,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 = 8,44
Hæfileikar: 9,5 – 10,0 – 5,0 – 8,5 – 8,5 – 9,5 – 9,5 – 7,5 = 8,58
Hægt tölt: 9,0

Aðaleinkunn: 8,53
Hæfileikar án skeiðs: 9,24
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,96
Sýnandi: Teitur Árnason
Þjálfari: Sigurður Baldur Ríkharðsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar