Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts Fimmgangnum frestað í Samskipadeildinni

  • 20. mars 2026
  • Fréttir
Í kvöld átti að fara fram fimmgangskeppni í Samskipadeildinni, áhugamannadeild Spretts.

Sökum óhagstæðrar veðurspár taldi stjórn Samskipadeildarinnar skynsamlegast að fresta fimmgangnum. „Við teljum það ekki forsvaranlegt að senda fólk út í óvissu með hestakerrur og stefna þannig fólki og dýrum í hættu. Veðrinu á ekki að slota fyrr en upp úr hádegi á morgun og þá er Samskipahöllin ekki laus.“

Nefndin vinnur hörðum höndum að því að finna nýjar mögulegar dagsetningar.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar