Fimmgangsveisla framundan á Rangárbökkum

Efstu knapar í 150 metra skeiði í fullorðinsflokki.
Alþjóðlegt (WR) íþróttamót Geysis heldur áfram í dag á Rangárbökkum við Hellu en mótið er sýnt í beinni útsendingu á sjónvarpi Eiðfaxa.
Keppni dagsins hefst klukkan 09:00 á keppni í fimmgangi (F1) í meistaraflokki þar sem frábærir knapar og hestar eru skráði til leiks. Keppt verður svo í hinum ýmsu keppnisflokkum í fimmgangi og fjórgangi en dagskrá lýkur ekki fyrr en um klukkan 22:00 í kvöld.
Í gær var keppt í forkeppni í fjórgangi og kappreiðaskeiði, 250 og 150 metra.
Sigurvegari í 250 metra skeiði var Sigurður Sigurðarson á Trommu frá Skúfslæk á tímanum 22,96 sekúndum og í ungmennaflokki var það Herdís Björg Jóhannsdóttir sem einnig fór á tímanum 22,96 sekúndur.
í 150 metra skeiði náði bestum tíma fullorðinna Árni Björn Pálsson á Þokka frá Varmalandi en þeir runnu sprettfærið á 14,79 sekúndum og í ungmennaflokki var það Sigurbjörg Helgadóttir á Hörpurós frá Helgatúni sem hraðast fór á tímanum 15,72 sekúndum.
Í fjórgangi í Meistaraflokki leiðir Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Hulin frá Breiðsstöðum með einkunnina 7,47 en allar niðurstöður mótsins má sjá og fylgjast með í rauntíma á snjallforritinu HorseDay.
Dagskrá föstudagur 30.maí
30.05.2025 09:00 | Fimmgangur F1 – Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur – Forkeppni |
30.05.2025 12:15 | Matur |
30.05.2025 13:00 | Fimmgangur F1 – Ungmennaflokkur – Forkeppni |
30.05.2025 13:50 | Fimmgangur F2 – Unglingaflokkur – Forkeppni |
30.05.2025 15:00 | Fimmgangur F2 – Fullorðinsflokkur – 1. flokkur – Forkeppni |
30.05.2025 16:00 | Kaffi |
30.05.2025 16:30 | Fimmgangur F2 – Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur – Forkeppni |
30.05.2025 17:40 | Fjórgangur V2 – Ungmennaflokkur – Forkeppni |
30.05.2025 18:10 | Fjórgangur V2 – Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur – Forkeppni |
30.05.2025 19:00 | Matur |
30.05.2025 19:30 | Fjórgangur V2 – Fullorðinsflokkur – 1. flokkur – Forkeppni |
30.05.2025 20:30 | Fjórgangur V2 – Barnaflokkur – B úrslit |
30.05.2025 20:50 | Fjórgangur V1 – Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur – B úrslit |
30.05.2025 21:10 | Fjórgangur V2 – Unglingaflokkur – B úrslit |
30.05.2025 21:30 | Fimmgangur F1 – Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur – B úrslit |