Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Fimmgangsveisla í beinni á EiðfaxaTV í kvöld!

  • 20. febrúar 2026
  • Fréttir

Ljósmynd: Carolin Giese

Þriðja keppnisgrein Meistaradeildar Líflands og Spennan magnast

Það eru sannkölluð forréttindi að vera áhugamaður um hestaíþróttir þessa dagana, því beinar útsendingar frá hinum ýmsu keppnum eru nær hvern dag á EiðfaxaTV. 

Í kvöld fer fram æsispennandi keppni í Meistaradeild Líflands þegar keppt verður í fimmgangi. Keppnin hefst klukkan. 19:00 en húsið opnar 17:30 og er frítt inn í boði Eques. Hlaðborðið verður á sínum stað en þeir sem panta fyrir fram tryggja sér frátekið sæti í stúkunni, hægt er að panta HÉR.

Þetta er þriðja keppnisgreinin af átta sem keppt er í og því ættu línur að fara að skýrast í einstaklings- og liðakeppni. Líkt og farið var yfir hér á vef Eiðfaxa fyrr í vikunni að þá eru svakalegar kanónur á ráslistanum fyrir kvöldið. Þar er að finna bæði reynd keppnispör og spennandi hross sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppni. Knaparnir munu leggja sig fram um að ná því besta fram í sínum hestum og hámarka árangur sinn.

Fyrir þá sem heima sitja verður allt í þráðbeinni á sjónvarpsstöð Eiðfaxa, EiðfaxaTV. Útsending hefst klukkan 18:30 og þulir kvöldsins á íslensku eru þau Hulda Geirsdóttir og Ævar Örn Guðjónsson. Þá sér Sigvaldi Lárus Guðmundsson um lýsingu á ensku og Julie Christansen á þýsku.

Líkt og í síðustu grein verður Landsmótsleikur í gangi á meðan að forkeppni stendur. Spurningarnar verða bornar upp í beinni útsendingu áður en keppni hefst og geta áhorfendur sent svör sín við þeim á tölvupóstfangið hilda@landsmot.is

Staðan í einstaklingkeppni fyrir kvöldið

Staðan í liðakeppni fyrir kvöldið

 

Nældu þér í áskrift og fylgstu með Meistaradeild Líflands á EiðfaxaTV

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar