Fjóla og Spira sigra í fimmgangi Áhugamannadeildar Norðurlands
Lið Laugarhvamms fagnar sigri í liðakeppni í fimmgangi
Keppni í fimmgangi fór fram í gær, sunnudaginn 14.mars, í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Var þetta annað mótið í mótaröðinni en næst verður keppt í tölti á Akureyri þann 11.apríl og er það lokamótið. Keppt er í flokki meira- og minna varna áhugamanna og voru það alls 63 knapar og hestar sem tóku þátt í fimmgangi.
Í flokki meira vanra sigraði Spire Cecilina Ohlsson á Verði frá Feti. Hún leiddi að lokinni forkeppni með 6,13 og í A-úrslitum jók hún enn frekar á forskot sitt og stóð uppi sem sigrvegari með 6,60 í einkunn. Önnur varð Elina Schriver á Sinfoníu frá Hofi með 6,10 í einkunn og í þriðja sæti varð Greta Brimrún Karlsdóttir á Brimdal frá Efri-Fitjum með 5,93.

Spira stendur efst á palli í flokki meira vanra áhugamanna
Í flokki þeirra knapa sem eru minna vanir sigraði Fjóla Viktorsdóttir á Snældu frá Syðra-Skörðugili. Líkt og Spire að þá leiddi hún nokkuð örugglega að lokinni forkeppni með einkunnina 5,83. Í úrslitunum bætti hún um betur og hlaut 6,33 í einkunn og sigurinn nokkuð öruggur. Önnur varð Sigríður K. Sverrisdóttir á Sóldögg frá Króksstöðum með 6,11 og í þriðja sætinu Eva-Lena Lohi á Klifu frá Galtanesi með 5,42 í einkunn.

Efstu knapar í flokki minna vanra knapa, Fjóla Viktorsdóttir efst á palli
Stigahæsta liðið í fimmgangi og því sigurvegari í liðakeppninni var lið Laugarhvamms með 88 stig í öðru sæti varð N1/Smiðjan með 72 stig og Syðra-Skörðugil með 69 stig. Þessi sömu lið raða sér á toppinn í heildarstigakeppni liða og er það lið Laugarhvamms sem leiðir þar með 138 stig, N1/Smiðjan í öðru sæti með 126 stig og í því þriðja lið Syðra-Skörðugils með 115,5 stig.
Heildarsúrslit
| Fimmgangur F2 | |||
| Áhugamenn meira vanir | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Spire Cecilina Ohlsson | Vörður frá Feti | 6,13 |
| 2 | Greta Brimrún Karlsdóttir | Brimdal frá Efri-Fitjum | 5,93 |
| 3 | Einar Ben Þorsteinsson | Paradís frá Gullbringu | 5,80 |
| 4 | Eline Schriver | Sinfónía frá Hofi | 5,70 |
| 5 | Aldís Ösp Sigurjónsd. | Elmar frá Staðarhofi | 5,67 |
| 6-7 | Einar Kristján Eysteinsson | Fiðla frá Tjarnarlandi | 5,60 |
| 6-7 | Herdís Einarsdóttir | Trúboði frá Grafarkoti | 5,60 |
| 8-9 | Jón Kristófer Sigmarsson | Jóndís frá Hæli | 5,47 |
| 8-9 | María Marta Bjarkadóttir | Vermir frá Hólabrekku | 5,47 |
| 10-11 | Gracina Fiske | Demantur frá Vindheimum | 5,40 |
| 10-11 | Mathilde Larsen | Sölvi frá Fornhaga II | 5,40 |
| 12 | Ólöf Sigurlína Einarsdóttir | Stika frá Skálakoti | 5,27 |
| 13 | Kolbrún Grétarsdóttir | Álfamær frá Hellnafelli | 5,23 |
| 14 | Sveinn Brynjar Friðriksson | Andri frá Útnyrðingsstöðum | 5,10 |
| 15 | Guðmundur Þór Elíasson | Fríða frá Varmalæk 1 | 5,07 |
| 16-17 | Magnús Fannar Benediktsson | Villimey frá Efra-Hvoli | 4,97 |
| 16-17 | Rúnar Júlíus Gunnarsson | Kopar frá Hrafnagili | 4,97 |
| 18 | Steingrímur Magnússon | Tími frá Tölthólum | 4,93 |
| 19 | María Ósk Ómarsdóttir | Sólrósin frá Íbishóli | 4,87 |
| 20 | Kristín Hrönn Pálsdóttir | Blær frá Dverghamri | 4,70 |
| 21 | Ásta Guðný Unnsteinsdóttir | Gæla frá Grafarkoti | 4,57 |
| 22 | Diljá Ýr Tryggvadóttir | Alda frá Hvalnesi | 4,50 |
| 23 | Jóhann Svanur Stefánsson | Hátíð frá Draflastöðum | 4,43 |
| 24 | Hanna Maria Lindmark | Orka frá Sleitustöðum | 4,40 |
| 25 | Ingunn Birna Árnadóttir | Kostur frá Auðnum | 4,37 |
| 26 | Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir | Birgitta frá Gilsárteigi | 4,13 |
| 27 | Jón Pétur Ólafsson | Una frá Staðartungu | 4,07 |
| 28 | Guðrún Margrét Steingrímsdóttir | Eyjasól frá Litlu-Brekku | 3,83 |
| 29 | Hreinn Haukur Pálsson | Tvistur frá Garðshorni | 3,80 |
| 30 | Helga Valbjörnsdóttir | Kapall frá Hlíðarbergi | 3,37 |
| 31 | Eyþór Þorsteinn Þorvarsson | Sigurdís frá Efri-Fitjum | 3,17 |
| 32 | Hjörleifur Helgi Sveinbjarnarson | Íþrótt frá Hólum | 0,00 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Spire Cecilina Ohlsson | Vörður frá Feti | 6,60 |
| 2 | Eline Schriver | Sinfónía frá Hofi | 6,10 |
| 3 | Greta Brimrún Karlsdóttir | Brimdal frá Efri-Fitjum | 5,93 |
| 4 | Herdís Einarsdóttir | Trúboði frá Grafarkoti | 5,83 |
| 5 | Einar Ben Þorsteinsson | Paradís frá Gullbringu | 5,76 |
| 6 | Aldís Ösp Sigurjónsd. | Elmar frá Staðarhofi | 4,26 |
| Fimmgangur F3 | |||
| Áhugamenn – minna vanir | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Fjóla Viktorsdóttir | Snælda frá Syðra-Skörðugili | 5,83 |
| 2-3 | Hrefna Hafsteinsdóttir | Taktur frá Bakkagerði | 5,03 |
| 2-3 | Eva-Lena Lohi | Klifa frá Galtanesi | 5,03 |
| 4 | Sigríður K Sverrisdóttir | Sóldögg frá Króksstöðum | 5,00 |
| 5 | Jóhann Albertsson | Vinur frá Eyri | 4,93 |
| 6 | Guðlaug Reynisdóttir | Þula frá Bringu | 4,87 |
| 7 | Fríða Marý Halldórsdóttir | Marel frá Hvammstanga | 4,87 |
| 8 | Jakob Víðir Kristjánsson | Hnokkadís frá Stóradal | 4,73 |
| 9 | Ester Anna Eiríksdóttir | Akkur frá Gásum | 4,47 |
| 10 | Magnús Ásgeir Elíasson | Dimmir frá Stóru-Ásgeirsá | 4,43 |
| 11 | Hákon Arnarson | Drift frá Hraunholti | 4,30 |
| 12-13 | Guðmundur Sigfússon | Hnoðri frá Laugabóli | 4,20 |
| 12-13 | Melanie Hallbach | Maísól frá Stormi | 4,20 |
| 14-15 | Berglind Ösp Viðarsdóttir | Óðinn frá Dalvík | 4,17 |
| 14-15 | Elín María Jónsdóttir | Sjonni frá Árhóli | 4,17 |
| 16 | Nele Mahnke | Freyr frá Varmalæk 1 | 3,97 |
| 17 | Ásdís Karen Hauksdóttir | Aþena frá Hrafnagili | 3,90 |
| 18 | Rósa Emilsdóttir | Dís frá Björgum 4 | 3,83 |
| 19 | Hugrún Lísa Heimisdóttir | Blíða frá Sigríðarstöðum | 3,73 |
| 20-21 | Erla Guðbjörg Leifsdóttir | Skarði frá Flagveltu | 3,67 |
| 20-21 | Stefán Berg Ragnarsson | Sónata frá Hjarðartúni | 3,67 |
| 22 | Steinunn Steinþórsdóttir | Rjóð frá Hveragerði | 3,63 |
| 23-24 | Björgvin Antonsson | Drottning frá Hólabrekku | 3,53 |
| 23-24 | Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir | Erpur frá Syðra-Kolugili | 3,53 |
| 25 | Þórir Áskelsson | Hilmir frá Húsey | 3,43 |
| 26 | Helena Rut Arnardóttir | Flumbri frá Teigabóli | 3,30 |
| 27 | Stefanía Malen Stefánsdóttir | Hugleikur frá Skriðufelli | 3,00 |
| 28 | Friðjón Geir Ólafsson | Viðja frá Skriðu | 2,53 |
| 29 | Sólbjört Júlía Óskarsdóttir | Von frá Reyðarfirði | 2,47 |
| 30 | Soffía Jóhanna Majdotter Dalma | Kolka frá Skagaströnd | 2,40 |
| 31 | Ríkey Nótt Tryggvadóttir | Fjöður frá Sólvangi | 2,10 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Fjóla Viktorsdóttir | Snælda frá Syðra-Skörðugili | 6,33 |
| 2 | Sigríður K Sverrisdóttir | Sóldögg frá Króksstöðum | 6,11 |
| 3 | Eva-Lena Lohi | Klifa frá Galtanesi | 5,42 |
| 4 | Guðlaug Reynisdóttir | Þula frá Bringu | 4,94 |
| 5 | Hrefna Hafsteinsdóttir | Taktur frá Bakkagerði | 4,58 |
| 6 | Jóhann Albertsson | Vinur frá Eyri | 4,31 |
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum