Meistaradeild KS í hestaíþróttum Fjöldi frábærra alhliðahrossa í Meistaradeild KS

  • 12. mars 2026
  • Fréttir

Finnbogi Bjarnason fagnar sigri í fimmgangi í Meistaradeild KS árið 2025

Keppni fer fram föstudagskvöldið 13.mars og hefst klukkan 18:00.

Þriðja keppnisgreinin í Meistaradeild KS fer fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki föstudagskvöldið 13.mars. Keppni hefst stundvíslega klukkan 18:00 og það er 550 SKR sem býður alla velkomna á mótið. Mótið er í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.

Alls eru 29 knapar skráðir til leiks og þar af tveir uppboðsknapar, það virðist því vera nægt framboð af góðum keppnishrossum í fimmgangi þar nyrðra. Á meðal uppboðsknapanna er Vera Evi Schneiderchen sem er efst í einstaklingskeppninni og vill ná sér í mikilvæg stig í þeirri baráttu. Hún keppir á Geislu frá Höskuldsstöðum sem er með 1.verðlaun í kynbótadómi en óreynd í keppni.

Sterk pör skráð til leiks

Á síðasta keppnistímabili var það Finnbogi Bjarnason á Eini frá Enni sem vann þessa grein en ljóst er að þeir saman verja ekki titilinn því Finnbogi mætir nú á öðru hrossi, Flís frá Narfastöðum. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal varð í þriðja sæti í fyrra á Sindra frá Lækjamóti og eru þeir skráðir til leiks í ár og ætla sér ofar. Af öðrum A-úrslitahrossum frá því í fyrra sem mæta á föstudaginn er að finna Fák frá Oddhóli sem í fyrra var sýndur af Kristjáni Árna Birgissyni en nú verður það Þórgunnur Þórarinsdóttir sem teflir honum fram. Kristján Árni mætir hingsvegar á reyndum keppnishesti, Vísi frá Ytra-Hóli. Þórarinn Eymundsson keppir á hinum þrautreynda Þránni frá Flagbjarnarholti en þeir hafa sigrað þessa grein í fimmgangi í Meistaradeild KS alls þrisvar sinnum árin 2024,2023 og 2021 farsæll keppnis- og kynbótahestur.

Af öðrum áhugaverðum pörum sem skráð eru til leiks má nefna Atla Frey Maríönnuson og Þulu frá Bringu sem voru í B-úrslitum í fimmgangi í Meistaradeild KS í fyrra. Þá er fljótasta par heimsins á skeiði, Kastor frá Garðshorni á Þelamörk og Konráð Valur Sveinsson, skráðir til leiks. Þórey Þula Helgadóttir og Kjalar frá Hvammi hafa átt góðan feril og voru m.a. í A-úrslitum á Íslandsmóti í fimmgangi á síaðsta ári í ungmennaflokki. Þá hefur keppnisferill Vignis Sigurðassonar á Eyfjörð frá Litlu-Brekku byrjað vel og þeir gætu vel blandað sér í toppbaráttu.

Það væri að bera í bakkafullan lækinn að telja upp alla þá sem keppa í fimmgangi á föstudagskvöldið upp hér í þessari yfirferð og alveg eins líklegt að einhver komi á óvart og fari heim með sigur í greininni.

Ráslisti

Nr. Knapi Hestur Lið
1 Jóhann Magnússon Frár frá Bessastöðum Uppsteypa
2 Herjólfur Hrafn Stefánsson Yllir frá Reykjavöllum Bústólpi
3 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Freydís frá Morastöðum Exar
4 Þórarinn Eymundsson Þráinn frá Flagbjarnarholti Hrímnir/ Hestklettur
5 Mette Mannseth Töfri frá Þúfum Þúfur
6 Erlingur Ingvarsson Eyjasól frá Litlu-Brekku Lífland
7 Uppboðssæti Vera Evi Schneiderchen Geisla frá Höskuldsstöðum
8 Magnús Bragi Magnússon Rosi frá Berglandi I Íbishóll
9 Elvar Einarsson Snælda frá Syðra-Skörðugili StormRider
10 Sigrún Rós Helgadóttir Grásteinn frá Hofi á Höfðaströnd Hofstorfan/ 550
11 Kristján Árni Birgisson Vísir frá Ytra-Hóli Hrímnir/ Hestklettur
12 Egill Már Þórsson Þrá frá Skriðu Bústólpi
13 Finnbogi Bjarnason Flís frá Narfastöðum StormRider
14 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Sindri frá Lækjamóti II Uppsteypa
Hlé 10 mín !
15 Guðmar Freyr Magnússon Spölur frá Efri-Þverá Þúfur
16 Þórey Þula Helgadóttir Kjalar frá Hvammi I Hofstorfan/ 550
17 Sigurður Dagur Eyjólfsson Þór frá Meðalfelli Exar
18 Uppboðssæti Kristófer Darri Sigurðsson Konsert frá Frostastöðum II
19 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Íbishóll
20 Vignir Sigurðsson Eyfjörð frá Litlu-Brekku Lífland
21 Lea Christine Busch Síríus frá Þúfum Þúfur
22 Atli Freyr Maríönnuson Þula frá Bringu Hofstorfan/ 550
23 Julian Veith Hátíð frá Ísalæk StormRider
24 Björgvin Helgason Karlsberg frá Kommu Bústólpi
25 Elvar Logi Friðriksson Brimdís frá Efri-Fitjum Uppsteypa
26 Lilja Dögg Ágústsdóttir Döggin frá Eystra-Fróðholti Lífland
27 Þórgunnur Þórarinsdóttir Fákur frá Oddhóli Hrímnir/ Hestklettur
28 Agnar Þór Magnússon Eik frá Meðalfelli Íbishóll
29 Emma Thorlacius Skjór frá Skör Exar

Staðan í liðakeppninni

1. Hrímnir / Hestklettur 128 stig
2. Hofstorfan / 550 – 110.5 stig
3. Þúfur – 103 stig
4. Lífland – 96.5 stig
5. Íbishóll – 73.5 stig
6. Uppsteypa – 65 stig
7. Storm Rider – 53.5 stig
8. Bústólpi 51.5 stig
9. Exar 40 stig

Staðan í einstaklingskeppninni

1. Vera Evi Schneiderchen 22 stig
2. Þórarinn Eymundsson 9 stig
2. Herdís Björg Jóhannsdóttir 9 stig
4. Mette Mannseth 8 stig
5. Freyja Amble Gísladóttir 7 stig
5. Lilja Dögg Ágústsdóttir 7 stig
7. Kristófer Darri Sigurðsson 6 stig
7. Barbara Wenzl 6 stig
9. Erlingur Ingvarsson 5 stig
9. Finnbogi Bjarnason 5 stig
11. Kristján Árni Birgisson 4 stig
11: Þorsteinn Björn Einarsson 4 stig
13. Þórey Þula Helgadóttir 3 stig
13. Agnar Þór Magnússon 3 stig
15. Guðmar Freyr Magnússon 2 stig
16. Auður Karen Auðbjörnsdóttir 1,5 stig
16. Lea Busch 1,5 stig
18. Björgvin Helgason 1 stig

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar