Fjórði sigur Þórarins og Þráins
Þórarinn fagnar sínum fjórða sigri í fimmgangi í Meistaradeild KS á Þráni frá Flagbjarnarholti Myndir: Freydís Bergsdóttir
Talsverð spenna var fyrir kvöldinu því hestakostur þeirra flinku knapa sem í deildinni keppa var góður, blanda af ungum og upprennandi hrossum og reynsluboltum. Sýnt var beint frá kvöldinu á EiðfaxaTV og voru þulir þau Guðbjörn Tryggvason og Klara Sveinbjörnsdóttir.
Fjórði sigurinn í höfn
Leikar fóru þannig að Þórarinn Eymundsson bar sigur úr býtum en hann keppti á hinum þrautreynda Þráni frá Flagbjarnarholti en þeir hafa sigrað fimmganginn í Meistaradeild KS alls fjórum sinnum árin 2026, 2024, 2023 og 2021. Þeir leiddu að lokinni forkeppni með 7,03 í einkunn og héldu forystunni nokkuð örugglega í A úrslitunum og stóðu uppi sem sigurvegarar með einkunnina 7,55.
Í öðru sæti var Þórey Þula Helgadóttir á Kjalari frá Hvammi I með 7,12 í einkunn og í því þriðja Sigrún Rós Helgadóttir á Grásteini frá Hofi á Höfðaströnd.

Lið Hofstorfan/550 fagnaði sigri í fimmgangi. Knapar í liðinu eru Kristófer Darri Sigurðsson, Þorsteinn Björn Einarsson, Þórey Þula Helgadóttir, Sigrún Rós Helgadóttir og Atli Freyr Maríönnuson
Hofstorfan/550 stigahæsta lið kvöldsins
Það var lið Hofstorfunnar/550 sem var stigahæsta lið kvöldsins með 6,95 stig en fyrir þeirra hönd í kvöld kepptu áðurnefndar Þórey Þula og Sigrún Rós og Atli Freyr Maríönnuson var í níunda sæti á Þulu frá Bringu.
Það er mikil spenna í liðakeppninni en nokkur stiga skera út um sætin. Efst sem stendur er lið Hrímnis með 194,5 stig, í öðru sæti lið Hofstorfunnar/550 með 180 stig og lið Þúfna með 161,5 stig.
Minnkaði forskot Veru
Með sigri sínum náði Þórarinn að minnka forskot Veru sem var með þrettán stiga forskot fyrir kvöldið eða 22 stig í heildina. Vera náði í engin stig í kvöld en Þórarinn nældi sér í 12 stig og er nú einungis einu stigi fyrir neðan hana í einstaklingskeppninni. Metta Mannset er í þriðja sæti með 15 stig og í fjórða er Þórey Þula Helgadóttir með 13 stig.
Næsta keppniskvöld í Meistaradeild KS er keppni í gæðingalist miðvikudaginn 25.mars í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki.
Niðurstöður
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Þórarinn Eymundsson Þráinn frá Flagbjarnarholti 7,55
2 Þórey Þula Helgadóttir Kjalar frá Hvammi I 7,12
3 Sigrún Rós Helgadóttir Grásteinn frá Hofi á Höfðaströnd 7,02
4 Mette Mannseth Töfri frá Þúfum 6,98
5 Julian Veith Hátíð frá Ísalæk 6,90
B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Kristján Árni Birgisson Vísir frá Ytra-Hóli 6,95
7 Þórgunnur Þórarinsdóttir Fákur frá Oddhóli 6,67
8-9 Finnbogi Bjarnason Flís frá Narfastöðum 6,62
8-9 Atli Freyr Maríönnuson Þula frá Bringu 6,62
10 Lea Christine Busch Síríus frá Þúfum 6,52
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Þórarinn Eymundsson Þráinn frá Flagbjarnarholti 7,03
2 Þórey Þula Helgadóttir Kjalar frá Hvammi I 6,80
3 Sigrún Rós Helgadóttir Grásteinn frá Hofi á Höfðaströnd 6,73
4 Mette Mannseth Töfri frá Þúfum 6,67
5 Julian Veith Hátíð frá Ísalæk 6,57
6 Finnbogi Bjarnason Flís frá Narfastöðum 6,57
7 Þórgunnur Þórarinsdóttir Fákur frá Oddhóli 6,53
8 Lea Christine Busch Síríus frá Þúfum 6,50
9-10 Atli Freyr Maríönnuson Þula frá Bringu 6,47
9-10 Kristján Árni Birgisson Vísir frá Ytra-Hóli 6,47
11 Kristófer Darri Sigurðsson Konsert frá Frostastöðum II 6,40
12 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Freydís frá Morastöðum 6,37
13 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Sindri frá Lækjamóti II 6,27
14-15 Vignir Sigurðsson Eyfjörð frá Litlu-Brekku 6,23
14-15 Guðmar Freyr Magnússon Spölur frá Efri-Þverá 6,23
16-17 Erlingur Ingvarsson Eyjasól frá Litlu-Brekku 6,17
16-17 Vera Evi Schneiderchen Geisla frá Höskuldsstöðum 6,17
18-19 Egill Már Þórsson Þrá frá Skriðu 6,03
18-19 Elvar Einarsson Snælda frá Syðra-Skörðugili 6,03
20 Agnar Þór Magnússon Eik frá Meðalfelli 5,97
21 Björgvin Helgason Karlsberg frá Kommu 5,80
22 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 5,73
23 Emma Thorlacius Skjór frá Skör 5,70
24-25 Jóhann Magnússon Frár frá Bessastöðum 5,27
24-25 Herjólfur Hrafn Stefánsson Yllir frá Reykjavöllum 5,27
26 Magnús Bragi Magnússon Rosi frá Berglandi I 5,17
27 Elvar Logi Friðriksson Brimdís frá Efri-Fitjum 5,13
28 Lilja Dögg Ágústsdóttir Döggin frá Eystra-Fróðholti 5,10
29 Sigurður Dagur Eyjólfsson Þór frá Meðalfelli 5,00
Fjórði sigur Þórarins og Þráins
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
„Verð rekinn úr liðinu ef ég mæti ekki“