Suðurlandsdeildin Flink alhliðahross í Suðurlandsdeild Eques

  • 23. mars 2026
  • Fréttir

Efstu knapar í Atvinnumannaflokki í fimmgangi Suðurlandsdeildarinnar árið 2025

Keppni í fimmgangi fer fram þriðjudaginn 24.mars klukkan 18:30

Fjórða grein Suðurlandsdeildarinnar Eques í hestaíþróttum fer fram á morgun, þriðjudag 24. mars. Keppt verður í fimmgangi í boði Eques og hefst keppni kl. 18:30. Húsið opnar 17:30 og verður veitingasalan á sínum stað. Mótið verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.

Að lokinni keppni í parafimi, slaktaumatölti og fjórgangi er það Lið Vöðla/Snilldarverk sem er á toppnum í liðakeppninni með 147,5 stig. Í öðru sæti er Bakkakot með 129 stig og jöfn í þriðja til fjórða sæti eru Árbakki/Árbæjarhjáleiga og Hestefli með 128 stig.

Í flokki atvinnumanna er enginn af þeim knöpum sem riðu til úrslita á síðasta keppnistímabili skráðir á þeim hestum sem þeir voru á þá. Á síðasta keppnistímabili var það Ásmundur Ernir Snorrason sem sigraði í keppni atvinnumanna í þessari grein, þá á Katli frá Hvolsvelli. Hann mætir nú á hryssunni Vök frá Efri-Brú. Á ráslistsa er að finna hross sem hafa gert það gott í fimmgangi og má þer nefna að Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir er á Krafti frá Svanavatni sem Hlynur Guðmundsson reið til A-úrslita í fyrra. Gústaf Ásgeir mætir á sigurvegara Slaktaumtöltsins, Gými frá Skúfslæk, en þeir hafa einnig gert það gott í fimmgangi og nokkrum sinnum farið yfir 7 í forkeppni.

Í áhugamannaflokknum mætir sigurvegarinn frá því í fyrra Jóhann G. Jóhannsson á Hafdísi frá Brjánsstöðum og gerir atlögu að því að verja titilinn. Theodóra Jóna Guðnadóttir varð í öðru sæti í fyrra á Sóla frá Þúfu í Landeyjum, hún mætir nú á Brimsól frá Þúfu í Landeyjum og systir hennar, Eyglóa Arna keppir á Sóla í flokki atvinnumanna. Þá er einnig á ráslista að finna par sem varð í fjórða sæti í fyrra en það er Sarah Maagaard Nielsen og Kiljan frá Miðkoti.

Ráslisti

Holl

At/Á

Knapi Hestur Lið
1 Á Þorbjörn Hreinn Matthíasson Fröken frá Ásmúla Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
1 Á Kristinn Karl Garðarsson Veigar frá Grafarkoti Krappi
2 At Dagbjört Skúladóttir Spyrnir frá Bárubæ Kastalabrekka
2 At Selina Bauer Fía frá Strandarhöfði Húsasmiðjan
3 Á Hannes Brynjar Sigurgeirson Skorri frá Varmalandi Vöðlar/Snilldarverk
3 Á Brynja Pála Bjarnadóttir Vörður frá Narfastöðum Árbakki/Árbæjarhjáleiga
4 At Ásdís Brynja Jónsdóttir Háspenna frá Hofi Wicked viking
4 At Hlynur Guðmundsson Dökkvi frá Miðskeri Hestefli
4 At Jón Ársæll Bergmann Kjarval frá Skíðbakka III Bakkakot
5 Á Theodóra Jóna Guðnadóttir Brimsól frá Þúfu í Landeyjum Miðkot/Skeiðvellir
5 Á Pernilla Therese Göransson Blossi frá Hvalnesi Húsasmiðjan
6 At Katrín Eva Grétarsdóttir Koltur frá Stóra-Bakka Raflagnaþjónusta Selfoss
6 At Ásmundur Ernir Snorrason Vök frá Efri-Brú Vöðlar/Snilldarverk
7 Á Malou Sika Jester Bertelsen Von frá Borgarnesi Kastalabrekka
7 Á Hallgrímur Birkisson Amalía frá Þjóðólfshaga 1 Krappi
8 At Alma Gulla Matthíasdóttir Skúmur frá Syðri-Úlfsstöðum Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
8 At Hulda Gústafsdóttir Hringjari frá Efri-Fitjum Árbakki/Árbæjarhjáleiga
9 Á Jónas Már Hreggviðsson Kolbeinn frá Hrafnsholti Wicked viking
9 Á Rúnar Freyr Rúnarsson Mósart frá Gafli Bakkakot
10 At Katrín Sigurðardóttir Haukur frá Skeiðvöllum Miðkot/Skeiðvellir
10 At Bjarney Jóna Unnsteinsd. Kraftur frá Svanavatni Hestefli
11 Á Elín Hrönn Sigurðardóttir Snilld frá Skeiðvöllum Vöðlar/Snilldarverk
11 Á Heiðdís Arna Ingvarsdóttir Foringi frá Laxárholti 2 Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
12 At Eygló Arna Guðnadóttir Sóli frá Þúfu í Landeyjum Raflagnaþjónusta Selfoss
12 At Fríða Hansen Vargur frá Leirubakka Kastalabrekka
13 Á Marie Hollstein Títan frá Margrétarhofi Bakkakot
13 Á Jóhann G. Jóhannesson Hafdís frá Brjánsstöðum Hestefli
14 At Malin Marianne Andersson Mjölnir frá Kálfsstöðum Wicked viking
14 At Sigurður Sigurðarson Mórall frá Hlíðarbergi Krappi
15 Á Lilja Hrund Pálsdóttir Lukka frá Þingási Húsasmiðjan
15 Á Emma Goltz Bragi frá Reykjavík Raflagnaþjónusta Selfoss
16 At Hekla Rán Hannesdóttir Víðátta frá Hrafnagili Bakkakot
16 At Stella Sólveig Pálmarsdóttir Pyttla frá Strandarhöfði Vöðlar/Snilldarverk
17 Á Sarah Maagaard Nielsen Kiljan frá Miðkoti Miðkot/Skeiðvellir
17 Á Anne Röser Náma frá Stóra-Hofi Kastalabrekka
18 At Gústaf Ásgeir Hinriksson Gýmir frá Skúfslæk Árbakki/Árbæjarhjáleiga
18 At Svanhildur Guðbrandsdóttir Brekkan frá Votmúla 1 Krappi
19 Á Elísabet Gísladóttir Víkingur frá Hrafnsholti Wicked viking
19 Á Þórdís Sigurðardóttir Hlíf frá Strandarhjáleigu Raflagnaþjónusta Selfoss
20 At Sigríkur Jónsson Maístjarna frá Arnarhóli Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
20 At Ingibjörg Sóllilja Baltasarsdóttir Stimpill frá Þúfum Húsasmiðjan
20 At Ólafur Þórisson Assa frá Árheimum Miðkot/Skeiðvellir
21 Á Hulda Jónsdóttir Grátur frá Hraunbæ Hestefli
21 Á Arney Ólöf Arnardóttir Kveldúlfur frá Fákshólum Árbakki/Árbæjarhjáleiga

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar