Folaldasýning Sörla – Uppboð á folatollum
Kjuði frá Dýrfinnustöðum er á meðal þeirra stóðhesta sem eru í folatolla uppboðinu. Hér setinn af Björgu Ingólfsdóttur á Landsmóti árið 2022. Ljósmynd: KollaGr
Hestamannafélagið Sörli heldur sína árlegu folaldasýningu næstkomandi laugardag, 28. febrúar. Samhliða sýningunni verður uppboð á úrval hágæða folatolla sem ættu að kitla ræktunartaugina hjá mörgum.
Kynbótanefnd Sörla hefur kynnt fjóra öfluga stóðhesta sem hægt verður að bjóða í:
Dalvar frá Efsta-Seli: Heimsmetafi í flokki 5 vetra stóðhesta með aðaleinkunnina 8,99. Hann skartar 9,01 fyrir sköpulag og 8,98 fyrir hæfileika.
Aspar frá Hjarðartúni: Ofurklárhestur sem hlaut 9,01 fyrir hæfileika án skeiðs, þar af 9,5 fyrir tölt, brokk og fegurð í reið.
Kjuði frá Dýrfinnustöðum: Alhliða gæðingur með 8,38 í aðaleinkunn. Afkvæmi hans hafa vakið mikla athygli og hrifningu nýverið í kynbótaferð Sörlafélaga.
Börkur frá Margrétarhofi: Brúnskjóttur undan Kveiki frá Stangarlæk og Flís frá Austurási. Hann á tvo bræður sem báðir hafa hlotið 1. verðlaun.
Sýning og skráning
Þorvaldur Kristjánsson mun dæma folöldin og eru veitt verðlaun fyrir fimm efstu sætin í hvorum flokki. Auk þess hlýtur glæsilegasta folald sýningarinnar hinn eftirsótta farandbikar, Þjórsárbakkabikarinn.
Sýningin er opin öllum en frestur til að skrá folöld til leiks rennur út á miðnætti í kvöld, 25. febrúar.
Upplýsingar um skráningu:
Netfang: kynbotanefnd@sorli.is
Skráningargjald: 5.000 kr. á hvert folald
Greiðsluupplýsingar: Reikningur 0545-26-3615, kt. 640269-6509
Folaldasýning Sörla – Uppboð á folatollum
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum
Meistaradeild KS frestað fram á föstudag
Skemmtilegt kvöld í Suðurlandsdeildinni